Hörður Axel dregur sig úr íslenska landsliðinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. júlí 2012 12:45 Hörður Axel í leik með Kelfavík gegn KR. Mynd / Daníel
Körfuknattleikskappinn Hörður Axel Vilhjálmsson hefur dregið sig úr íslenska landsliðshópnum. Þetta staðfesti Hannes S. Jónsson formaður Körfuknattleikssambands Íslands í samtali við Vísi í morgun. Hörður Axel, sem lék með Fjölni, Njarðvík og Keflavík hér á landi áður en hann hélt í atvinnumennsku á nýjan leik fyrir síðustu leiktíð, hefur æft með íslenska liðinu í sumar í undirbúningi þess fyrir undankeppni Evrópumótsins sem fram fer í ágúst og september. Hörður Axel leikur með þýska liðinu Mitteldeutshcer BC sem vann sér þátttökurétt í efstu deild þýska körfuboltans á síðustu leiktíð. Hann heldur nú til móts við félag sitt sem er í undirbúningi fyrir komandi leiktíð og segir skilið við landsliðið. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Hörður Axel dregur sig úr íslenska landsliðinu. Haustið 2007 dró hann sig úr landsliðinu fyrir leiki gegn Finnlandi í B-deild Evrópukeppni. Þá hélt hann til Ítalíu til þess að taka þátt í undirbúningstímabili Treviso í stað þess að spila með landsliðinu. Æfingahópurinn, sem taldi átján leikmenn en nú sautján, æfði í júní og mætir aftur til æfinga á sunnudaginn. Fyrsti leikur liðsins er gegn stórþjóð Serbíu þriðjudaginn 14. ágúst í Laugardalshöll. Peter Öqvist, þjálfari landsliðsins, velur á endanum þá tólf leikmenn sem spila munu fyrir hönd Íslands í undankeppninni.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Sport Hefur eignast barn en þarf samt að sanna að hún sé kona Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótbolti Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Körfubolti Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Enski boltinn Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Enski boltinn Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn Opinberuðu sambandið með sigurkossi Formúla 1 Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“ Semple til Grindavíkur NBA stjarna sökuð um að stela tugum milljóna frá spilavítum Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hrella Caitlin Clark Bað hennar í íþróttahúsinu þar sem allt byrjaði Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni NBA reynslubolti handtekinn fyrir ávísunarfals LeBron hitti umboðsmann Jokic í Frakklandi Sjá meira