Fyrsta platan unnin í eldhúsinu hjá trommara Arcade Fire 14. ágúst 2012 13:59 Tim Carbtree heldur tvenna tónleika í Reykjavík. Hann hefur unnið náið með tommara Arcade Fire.
Tónlistarmaðurinn Tim Crabtree heldur tvenna tónleika í Reykjavík í vikunni. Crabtree kemur fram undir nafninu Paper Beat Scissors og hefur meðal annars unnið náið með Jeremy Gara úr hljómsveitinni Arcade Fire. "Ég hef búið í Kanada síðustu átta ár og þar kynntist ég Atla Bollasyni og í gegnum hann kynntist ég Snorra Helgasyni og við spiluðum saman í Montreal. Ég var svo að skipuleggja tónleikaferðalag um Evrópu og þegar ég sá að ég gæti flogið í gegnum Ísland stökk ég á tækifærið enda er ég mjög heillaður af íslenskri tónlist og menningu," segir Crabtree sem heldur tónleika á Hemma og Valda annað kvöld og á Faktorý á fimmtudag. Crabtree er breskur en flutti til Kanada fyrir átta árum til að stunda háskólanám og ílentist. Hann segir tónlistarumhverfið í Kanada líflegt og vann hann fyrstu plötu sína, Paper Beat Scissors, ásamt trommara Arcade Fire og Mike Feuerstack úr hljómsveitinni Snailhouse. "Ég bað Mike um að hljóðblanda plötuna mína því mér þótti spennandi að fá að vinna með honum. Hann og Jeremy eru góðir vinir og þegar Jeremy frétti af verkefninu vildi hann ólmur vera með. Við tókum plötuna að mestu upp í Nova Scotia síðasta sumar en kláruðum hana í eldhúsinu heima hjá Jeremy þar sem hann kom tímabundið upp hljóðveri." Inntur eftir því hvort hann sé spenntur fyrir Íslandsheimsókninni svarar Crabtree því játandi. "Ég er mjög spenntur. Vinir mínir sem hafa heimsótt landið tala allir um hvað það sé fallegt, ég er líka í bókaklúbbi og las eitt verka Halldórs Laxness og það vakti athygli mína enn frekar á landinu." Að tónleikunum loknum heldur Crabtree tónleikaferð sinni áfram um ýmis lönd Evrópu. - sm
Mest lesið Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Lífið Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Lífið Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Lífið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Lífið Typpi í einu gati, tæki í öðru Lífið Sígild sumarterta að hætti Dana Lífið Stjörnufans í sumarselskap Lífið Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Lífið Þau allra nettustu á Met Gala Tíska og hönnun Arnór Ingvi og Andrea skinu skært í sænsku konungshöllinni Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira