Rokkarar fá Rokkjötnahúðflúr 5. september 2012 10:21 Listakonan býður upp á sérstakt Rokkjötnahúðflúr á hátíðinni Rokkjötnar á laugardaginn Fréttablaðið/vilhelm
Listakonan Ýrr Baldursdóttir mun bjóða gestum tónlistarhátíðarinnar Rokkjötnar upp á ókeypis "airbrush-Rokkjötnatattú" sem síðar verður hægt að þvo af sér. "Þú þarft ekki að sjá eftir því þótt þú sért kominn í glas að hafa skellt á þig rokktattúi," segir Ýrr. Þeir sem verða ánægðir með útkomuna og vilja fá alvöru Rokkjötnahúðflúr geta bókað sig á tónleikunum og mætt síðar meir á stofuna hennar. Þar fá hátíðargestir 75% afslátt af húðflúrinu. "Airbrush" er nokkurs konar líkamsmálning sem einnig er hægt að spreyja á föt. "Þetta tekur mun styttri tíma en nálin og er mun sársaukaminna," segir Ýrr. Listakonan málaði í sumar fyrir rokkarana í Skálmöld handsmíðaðan gítar af tegundinni Fender sem verður boðinn upp á Rokkjötnum, eins og Fréttablaðið hefur greint frá. Allur ágóðinn rennur til samtakanna Blátt áfram. "Þetta er frábært málefni og það er mikilvægt að vekja fólk til umhugsunar um það." Átta íslenskar rokksveitir stíga á svið á Rokkjötnum í Kaplakrika á laugardaginn, þar á meðal Ham, Skálmöld og Sólstafir. - fb
Tónlist Mest lesið Calvin Harris orðinn faðir Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Stórbrotnar íbúðir í Skipholtinu Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira