Dikta á mikilli siglingu 13. desember 2012 11:30 Dikta er á mikilli siglingu þessa dagana. Nýkomin úr tónleikaferð og byrjuð að plana þá næstu og aðra plötu.
Dikta er nýskriðin heim til Íslands eftir vel heppnaða tónleikaferð til Þýskalands og Sviss og stefnir á frekari útrás á komandi ári. Í kvöld heldur sveitin órafmagnaða tónleika í Vídalínskirkju en tónleikarnir eru orðnir árlegur viðburður hjá drengjunum og eins og undanfarin ár fá þeir með sér aðra tónlistarmenn úr Garðabænum. Söngvarinn Haukur Heiðar mætti í viðtal hjá Yngva Eysteins á FM957 í morgun. Hægt er að hlusta á viðtalið hér fyrir ofan og á útvarpvef Vísis. Þar ræddi Haukur um tónleikana í kvöld, jólaplötu föður síns, næstu plötu Dikta og margt fleira. Pétur Ben og Ómar Guðjónsson koma fram ásamt Diktu í kvöld. Pétur Ben sendi nýverið frá sér sína aðra breiðskífu, God's Lonely Man, sem hlotið hefur afbragðs dóma og Ómar var að enda við að gefa út sína fyrstu rokkplötu, Útí geim, en hann var að ljúka tvöföldum túr um landið með Jónasi Sigurðssyni. Tónleikarnir hefjast klukkan 20 í kvöld og miðaverð er 2500 krónur. Hægt er að nálgast miða á midi.is. Hér fyrir neðan er síðan hægt að sjá myndbandið við lagið What Are You Waiting For? sem var frumsýnt hér á Vísi í haust.
Tónlist Mest lesið Calvin Harris orðinn faðir Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Sjónræn tónlistarhátíð í fyrsta sinn Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira