Mourinho ræddi ekkert við Casillas 25. desember 2012 15:00 Iker Casillas var ekkert sérstaklega kátur á varamannabekk Real Madrid gegn Malaga. Nordic Photos / Getty Images
Það vakti athygli um helgina þegar José Mourinho þjálfari Spánarmeistaraliðs Real Madrid valdi ekki markvörðinn Iker Casillas í byrjunarliðið gegn Malaga. Antonio Adan var valinn í stað hins 31 árs gamla Casilla sem jafnframt er fyrirliði Real Madrid. Casillas segir að Mourinho hafi ekkert rætt við sig um liðsvalið. „Ég er ekki vanur því að vera á varamannabekknum, en það sem skiptir mestu máli er að ég er hluti af liði. Ég verð að leggja mig fram og reyna að komast í byrjunarliðið á ný," sagði Casillas eftir leikinn sem Real Madrid tapaði 3-2. „Það er þjálfarinn sem velur liðið, og ég fann á æfingum fyrir leikinn að þetta gæti endað svona. Mourinho ræddi þetta ekkert við mig. Það hefur ekki þurft að útskýra það fyrir mér afhverju hann velur mig í byrjunarliðið og hann þarf því ekkert að útskýra það fyrir mér ef ég er ekki valinn. Mér líður vel en það er þjálfarinn sem ræður ferðinni. Það er heilbrigð samkeppni um byrjunarliðisstöðuna og þannig á að það vera," sagði Casillas í sjónvarpsviðtali eftir leikinn. Mourinho sagði eftir leikinn að hann hefði ekki tekið ranga ákvörðun með því að setja Casillas á bekkinn. „Ég er með hreina samvisku, ég geri það sem er best fyrir liðið í hverjum leik," sagði Mourinho en hann þykir ekki vera í öruggasta starfinu á Spáni þessa dagana. Real Madrid er í þriðja sæti deildarinnar, 16 stigum á eftir Barcelona. Atlético Madrid er í öðru sæti deildarinnar.
Spænski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Bein útsending: Arnar kynnir landsliðshópinn Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fleiri fréttir Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Bein útsending: Arnar kynnir landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Sjá meira