Söng í fyrsta sinn í Las Vegas 19. mars 2012 13:00 Geir Ólafsson söng í fyrsta sinn í Las Vegas í síðasta mánuði. Þar hitti hann leikarann Robert Davi. „
Ég var með risatónleika í Las Vegas,“ segir Geir Ólafsson, sem söng með 25 manna hljómsveit vinar síns Dons Randi í borginni í síðasta mánuði. Þrjú hundruð manns voru á tónleikunum sem voru haldnir á Fairmont-hóteli í Vegas. Frægir einstaklingar voru í salnum, þar á meðal dóttir söngvarans Deans Martin og Robert Davi. Hann hefur leikið óþokka í hinum ýmsu kvikmyndum, þar á meðal í Bond-myndinni Licence to Kill. „Þetta var gríðarlegur heiður og frábært að upplifa þessa stemningu,“ segir Geir og stefnir á að stíga aftur á svið í Vegas síðar meir. Geir söng einnig á skemmtistaðnum Baked Potato í Hollywood, sem er í eigu Randi, eins og hann hefur áður gert. Þar deildi hann sviði með Brandon Fields sem er kunnur saxófónleikari í Bandaríkjunum. Gunnar Sigurðsson tók upp báða tónleika Geirs og ætlar að búa til heimildarmynd um ævintýrið. „Það var mjög gaman að vinna með honum. Hann er mikill fagmaður,“ segir Geir um Gunnar. Hann hefur áður gert heimildarmyndina Maybe I Should Have. -fb
Tónlist Mest lesið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Drengurinn sem dó Lífið Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Lífið Geoff og Ásta Margrét nýtt par Lífið Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Lífið Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Nakinn á kóræfingu Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira