Húsleit Seðlabanka ekki ólögmæt 1. júní 2012 06:30 Seðlabankinn framkvæmdi húsleit hjá Samherja í lok mars. Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri og einn aðaleigenda Samherja. Fréttablaðið/Heiða
Hæstiréttur hafnaði í gær kröfu Samherja og tengdra félaga um að húsleit og haldlagning Seðlabankans á gögnum á tveimur starfsstöðvum samstæðunnar yrðu dæmdar ólögmætar og að Seðlabankanum yrði gert að skila öllum haldlögðum og afrituðum gögnum. Seðlabankinn framkvæmdi húsleit á skrifstofum Samherja á Akureyri og í Reykjavík þann 27. mars síðastliðinn. Tilefni leitarinnar var grunur um brot á lögum um gjaldeyrisviðskipti, einkum þegar kom að verðlagningu á karfa sem seldur var til dótturfélags Samherja í Þýskalandi. Seðlabankinn telur að ósamræmi hafi verið í skilum Samherja á erlendum gjaldeyri. Þá vísaði Hæstiréttur frá kröfu samstæðunnar sem laut að lögmæti og framkvæmd rannsóknaraðgerðanna þar sem þær væru afstaðnar. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að „vegna mikils umfangs hinna haldlögðu gagna yrði að játa SÍ [Seðlabankanum] nokkru svigrúmi við rannsókn þeirra“. Þar segir jafnframt að Samherja hafi ekki tekist að sýna fram á að einstök skjöl eða önnur gögn hafi verið þýðingarlaus fyrir rannsóknina.- þsj
Samherji og Seðlabankinn Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira