Söngleikjaplata frá söngvara ársins 16. júní 2012 11:00 ánægður Þór Breiðfjörð er ánægður með verðlaunin sem hann fékk sem söngvari ársins.fréttablaðið/pjetur
Þór Breiðfjörð er með einsöngsplötu í undirbúningi þar sem lög úr söngleikjum verða áberandi. „Mig langar að taka fleiri stór lög sem hafa jafnvel ekki verið sungin inn á plötu, til dæmis Óperudrauginn. Svo verða frumsamin lög eftir góða höfunda sem ég hef verið að skoða. Þetta verður góð blanda," segir Þór, sem hyggur einnig á upptökur á hefðbundnari dægurlagaplötu á næsta ári. Þór var kjörinn söngvari ársins á Grímuverðlaununum fyrir frammistöðu sína í söngleiknum Vesalingunum í Þjóðleikhúsinu. Hann segir að rosalega indælt hafi verið að vinna verðlaunin og að þau hafi komið sér á óvart. „Mér skilst að Íslenska óperan hafi tekið þetta mikið undanfarin ár hún var með mjög sterka söngvara í flokknum, fyrir utan það að félagi minn Egill Ólafsson, sem er goðsögn sjálfur, var þarna með. Þannig að maður var með krosslagða fingur." Þór flutti nýlega heim til Íslands eftir fjórtán ára útivist. Hann þekkir Vesalingana vel því hann fór með hlutverk í söngleiknum í tvö ár á West End í London og ferðaðist auk þess með sýninguna um Skandinavíu með öðrum norrænum söngvurum. Sýningum á Vesalingunum lýkur í Þjóðleikhúsinu í lok júní. -fb
Lífið Tónlist Mest lesið Var ekki beðinn um að skrifa meira á RÚV eftir pistilinn 2022 Lífið Björgólfur og Kristín í fimmtugsafmæli Beckham Lífið Mæðgin á stóra sviðinu í Feneyjum með íslenskan arkitektúr Menning Áhorfendur djúpt snortnir á forsýningu Stóru stundarinnar Lífið Glamúr og glæsileiki í fimmtugsafmæli Kristínar Ólafs Lífið Stærsti sinueldur Íslandssögunnar í myndum Lífið Verðmiðinn hækkar á höll Antons Lífið Tónleikar Lady Gaga æðislegir og öryggisgæslan svakaleg Lífið „Ég fór úr sjötíu prósent þjáningu niður í tíu prósent“ Lífið Pedro Pascal fékk sér að borða á Kaffi Vest Lífið Fleiri fréttir Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira