Átján mánaða lagahöfundur 24. nóvember 2012 13:00 músíkalskir feðgar Þeir Guðmundur Ingi og Aðalsteinn Ingi eru báðir mikið fyrir tónlist og sömdu Ég held heim um jólin í sameiningu.fréttablaðið/valli „
Hann var raulandi sama stefið út í eitt í sumar, þá 18 mánaða, og það varð kveikjan að laginu. Mér fannst þetta svo jólalegt hjá honum. Ég reyndi nokkrum sinnum að raula með honum en þá hætti hann alltaf því ég gerði þetta víst ekki rétt," segir lagahöfundurinn og leikarinn Guðmundur Ingi Þorvaldsson. Guðmundur Ingi samdi lagið Ég held heim um jólin með aðstoð sonar síns, Aðalsteins Inga, og hefur það nú verið gefið út af hljómsveitinni Loftskeytamenn, þar sem Guðmundur er einmitt söngvari. Hann segir Aðalstein Inga greinilega þekkja lagið þegar hann heyrir það. „Hann virðist tengjast því að einhverju leyti því ég spilaði það til að mynda fyrir hann í gær og hann var sönglandi það allt kvöldið," segir hann. Aðspurður hvort Aðalsteinn sé upprennandi tónlistarmaður segir Guðmundur svo vel geta orðið þar sem hann sé afar músíkalskur og læri texta, þrátt fyrir ungan aldur. „Við verðum að sjá til. Vonum bara að hann finni sína leið í lífinu," segir Guðmundur.- trs
Lífið Sónar Tónlist Mest lesið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Drengurinn sem dó Lífið Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Lífið Nakinn á kóræfingu Lífið Geoff og Ásta Margrét nýtt par Lífið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira