Slökkt á MSN eftir tvo mánuði Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. janúar 2013 12:06
Samskiptaforrit Microsoft, Windows Live Messenger, verður ekki aðgengilegt frá og með 15. mars næstkomandi. Forritinu, sem gekk fyrst undir nafninu MSN Messenger, var komið á laggirnar í júlí 1999. Það varð á örskotsstund að vinsælasta samskiptaforritinu á veraldarvefnum með hundruð milljón notenda um heim allan. Samkeppnin á markaðnum hefur aukist verulega undanfarin ár með tilkomu spjallsins á Facebook og Google auk Skype og iMessage svo helstu dæmi séu nefnd. MSN hefur orðið undir í samkeppninni og með kaupum Microsoft á Skype frá eBay í maí 2011 varð ljóst að dagar MSN yrðu senn taldir. Microsoft staðfesti það í nóvember síðstliðnum. Microsoft vonast til þess að notendur MSN snúi sér í auknum mæli til Skype. Í þeim tilgangi hafa þeir reynt að gera skiptin sem þægilegust. Áttu notendur að geta skipt úr MSN yfir í Skype með því að smella á einn hnapp. Til eru dæmi þess að það hafi ekki gengið snurðulaust fyrir sig að því er Independent greinir frá. Notendur MSN ættu því að vista alla tengiliði sína til vonar og vara fyrir 15. mars. Ekki verður hægt að skrá sig inn á Windows Live Messenger frá og með þeim tíma.
Erlent Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent „Veiddu“ grænmetissala með dróna Erlent Fleiri fréttir „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ Sjá meira