Svakaleg sigurkarfa Gunnars í Ljónagryfjunni í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. október 2013 22:04
Gunnar Ólafsson var hetja Keflvíkinga í Ljónagryfjunni í kvöld þegar hann skoraði sigurkörfuna í 88-85 sigri á erkifjendunum í Njarðvík. Gunnar setti þá niður þriggja stiga körfu í horninu fyrir framan stuðningsmenn Njarðvíkur þegar aðeins 0,6 sekúndur voru eftir af leiknum. Gunnar Ólafsson er aðeins tvítugur og á sínu fyrsta tímabili með Keflavíkurliðinu og það er ekki slæmt að enda fyrsta Reykjanesbæjarslaginn sinn á þennan hátt. „Það fór í raun og veru ekkert í gegnum hausinn, það var bara einn möguleiki og það var að setja skotið niður. Vöðvaminnið tekur í raun við, ég var ekki búinn að hitta vel í leiknum en ég gleymdi því bara og skaut í lokin," sagði Gunnar Ólafsson í viðtali við Árna Jóhannsson, blaðamann Vísis á leiknum í Njarðvík í kvöld. Gunnar Ólafsson skoraði 11 stig í leiknum en hann var bara búinn að hitta úr einu af sex þriggja stiga skotum í leiknum þegar hann fékk boltann í horninu. Það er hægt að sjá þessa svakalegu sigurkörfu með því að smella hér fyrir ofan en leikurinn var í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og það var að sjálfsögðu Svali Björgvinsson sem lýsti.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Keflavík 85-88 | Gunnar með sigurkörfuna Keflvíkingar eru áfram ósigraðir í Dominos-deild karla í körfubolta eftir þriggja stiga útisigur á erkifjendum sínum í Njarðvík, 88-85, í mögnuðum nágrannaslag í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld. 28. október 2013 18:30 Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Fótbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Bíður eftir kallinu frá Arnari: „Myndi segja að ég væri klár“ Fótbolti Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Enski boltinn Alcaraz sjokkerar tennisheiminn Sport Fleiri fréttir „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Keflavík 85-88 | Gunnar með sigurkörfuna Keflvíkingar eru áfram ósigraðir í Dominos-deild karla í körfubolta eftir þriggja stiga útisigur á erkifjendum sínum í Njarðvík, 88-85, í mögnuðum nágrannaslag í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld. 28. október 2013 18:30