Haukar og Snæfell mætast tvisvar á fjórum klukkutímum - frítt inn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. október 2013 10:45 Haukamaðurinn Emil Barja. Mynd/Valli
Það verður tvíhöfði í Schenkerhöllinni á Ávöllum í kvöld þegar Haukar og Snæfell mætast bæði í Domnios-deild karla og Domnios-deild kvenna í körfubolta. Það er ekki á hverjum degi sem sömu lið mætast tvisvar á fjórum klukkutímum. Bæði lið Hauka eru á góðu skriði og unnu síðustu leiki sína nokkuð sannfærandi. Meistaraflokkur kvenna hefur unnið síðustu tvo leiki sína eftir erfiða byrjun og meistaraflokkur karla, sem kom upp í úrvalsdeildina í haust, hefur unnið tvo af þremur leikjum sem það hefur spilað. Snæfellskonur eru í 2. sæti deildarinnar eftir fjóra sigra í röð en það hefur ekki gengið eins vel hjá karlaliðinu sem hefur tapað tveimur af fyrstu þremur leikjum sínum. Það verður nóg að gera hjá Inga Þór Steinþórssyni í kvöld en hann þjálfar bæði Snæfellsliðin. Valitor, sem nýverið flutti höfuðstöðvar sínar í Hafnarfjörð, ætlar að bjóða öllum frítt á leikina og þetta er því kjörið tækifæri til að mæta og horfa á flottan körfubolta. Veislan byrjar klukkan sex með leik Hauka og Snæfells í Domino‘s deild kvenna og leikur karlaliðsins hefst klukkan átta. "Grillið verður opið milli leikja og hefur Gunni grillari fengið með sér valinkunna menn til að aðstoða sig. Marel Örn Guðlaugsson, leikjahæsti leikmaður Íslandsmótsins frá upphafi, verður Gunna til halds og trausts og Gunnar Svanlaugsson, formaður og grillmeistari Snæfellinga, mun einnig standa vaktina," segir í frétt um leikina á heimasíðu Hauka.
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira