Með vin sinn sem þjálfara í Matrix-leðurslopp Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. nóvember 2013 23:00 Halldór Helgason. „
Það eru margir aðrir í þessu sem borða bara hollt, fara í ræktina á fullu, hoppa á trampólínum og gera ekki neitt annað en að æfa sig fyrir Ólympíuleikana,“ segir snjóbrettakappinn Halldór Helgason. Halldór stefnir á þátttöku í brekkuþrautum (e. slopestyle) á Vetrarólympíuleikunum í Sochi í Rússlandi í febrúar. Hann telur sig eiga fína möguleika á að komast þangað takist honum vel upp á móti í Colorado í desember og Kanada í janúar. 40 efstu á FIS-lista Alþjóðaskíðasambandsins öðlast þátttökurétt á leikunum. „Ef maður skyldi komast á leikana væri það gaman, að afsanna að maður þurfi ekki að vera einhver 100% íþróttamaður sem þarf að hugsa bara um þetta til að ganga vel,“ segir Halldór í viðtali í Morgunblaðinu. Hann vilji sömuleiðis ekki eyða of miklum tíma í undirbúning því gangi hlutirnir ekki upp hafi hann ekki fengið neitt út úr því. Halldór segist ekki trúa á að vera með landsliðsþjálfara. „Ég myndi ekkert hlusta á einhvern gaur segja mér til sem hefði aldrei gert „trikkin“ sjálfur. Ég trúi bara ekkert á þetta og þess vegna er ég bara með vin minn sem þjálfara og hann er bara þarna í einhverjum Matrix-leðurslopp og við fíflumst bara í öllum öðrum.“ Hann segir snjóbretti ekki vera neina þjálfaraíþrótt. Maður eigi bara að gera það sem maður vilji.
Íþróttir Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Sport Fleiri fréttir „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Dagskráin í dag: Meistaradeildarveisla í allt kvöld Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga Sigurganga Hauka heldur áfram Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Áhugaverð ummæli Teits hafa hrist upp í hlutunum Verður líkamleg og andleg barátta Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Tímabilinu lokið hjá Viktori Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Finnar neita að spila við Rússland á HM Sjá meira