Nemur við virtan tónlistarháskóla Sara McMahon skrifar 3. apríl 2013 12:00 Úlfur Hansson flytur til Bandaríkjanna ásamt fjölskyldu sinni í haust. Þar mun hann leggja stund á meistaranám í raftónlist við Mills College. mynd/Iona Sjöfn Huntingdon-Williams
Tónlistarmaðurinn Úlfur Hansson mun hefja meistaranám í raftónlist við Mills College í Kaliforníu í haust. Tónlistardeild skólans þykir sérlega framsækin og hlýtur Úlfur styrk fyrir skólagjöldunum gegn því að kenna nemendum á grunnstigi að búa til raftónlistarhljóðfæri, en 26 strengja rafstrokin harpa Úlfs hlaut Nýsköpunarverðlaunin í ár. Úlfur og sambýliskona hans, Rebekka Rafnsdóttir, flytjast búferlum í ágúst ásamt frumburði sínum; lítilli dóttur sem fæddist þann 27. mars. „Við erum orðin mjög spennt, þetta verður algjört ævintýri. San Francisco er ein af uppáhaldsborgunum mínum í Bandaríkjunum; andrúmsloftið er svo afslappað þar og fólkið opið og skemmtilegt,“ segir hann. Mills College er gamall og virtur skóli og á meðal þeirra tónlistarmanna sem hafa lokið þaðan námi eru tónskáldin Leon Kirchner og Darius Milhaud, listakonan Laurie Anderson, Phil Lesh úr hljómsveitinni Grateful Dead, tilraunatónskáldið Steve Reich og tónlistarkonan Joanna Newsom. „Það hafa margir flottir listamenn verið viðloðandi þessa stofnun í gegnum tíðina. Hljómsveitin Deerhoof spratt meðal annars upp úr umhverfinu í kringum Mills og svo er Fred Frith yfir tónlistardeildinni og verður prófessorinn minn.“ Úlfur er menntaður í klassískri tónlist við Listaháskóla Íslands. Í mars kom út fyrsta sólóplata hans á heimsvísu og ber hún nafnið White Mountain. Platan hefur hlotið mikla athygli og hafa blaðamenn tímaritsins Spin Magazine og tónlistarvefsíðunnar Pitchfork.com farið fögrum orðum um hana. Hann segir raftónlistaráhugann hafa fylgt sér frá barnsaldri. „Ég hef haft áhuga á raftónlist frá því að ég var lítill og bakgrunnur minn liggur í klassískri tónlist með áherslu á raftónlist.“ Spurður út í framtíðaráformin segir Úlfur þau óráðin en telur líklegt að fjölskyldan dvelji áfram í Bandaríkjunum bjóðist það. „Annars gætum við alveg eins endað í annarri heimsálfu. Hver veit.“
Tónlist Mest lesið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Loni Anderson er látin Lífið Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Gagnrýni Calvin Harris orðinn faðir Lífið Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Nórður-Kóreu?“ Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira