Morðæði Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 28. október 2013 10:45 Ég klifra upp stiga á hárri byggingu. Ég dreg fram haglabyssu og miða á gangstéttina fyrir neðan. Plaff! Fyrsta manneskja sem gengur framhjá dettur niður dauð. Svo reyni ég að ná svona fjórum eða fimm til viðbótar. Restina af skotfærunum geymi ég fyrir lögregluna. Mínútu síðar er ég umkringdur. Ég næ að drepa nokkrar löggur áður en ég dey sjálfur í kúlnaregni. Einhverra hluta vegna lifna ég aftur við. Eftir stutta dvöl á sjúkrahúsi er mér hleypt út í samfélagið á ný. Ég bíð ekki boðanna heldur ræðst á saklausa eldri konu fyrir utan sjúkrahúsið. Stappa á hausnum á henni og hleyp svo út á götu þar sem ég stel bíl. Ég reyni að keyra eins marga niður og ég get áður en lögreglan handtekur mig. Ég veit ekki af hverju ég geri það sem ég geri. Verkefnin í GTA V eru í sjálfu sér ekki erfið, en mér finnst mun skemmtilegra að hlaupa í morðæði um tölvuleikinn en að leysa þau. Alveg eins og mér fannst mun skemmtilegra að tækla markmann litla bróður míns í FIFA 2000 en að spila við hann fótbolta. Jafnvel þó það endaði iðulega með því að bróðir minn slökkti öskrandi og emjandi á tölvunni. Ég útiloka auðvitað ekki að ég eigi eitthvað bágt, en hvernig stendur þá á því að þessi ofbeldishneigð mín hefur aldrei látið á sér kræla í raunveruleikanum? Ég hugsa enn til þess með hryllingi þegar ég ákvað að lina þjáningar hálfétins fugls á Höfn í Hornafirði sem hafði orðið ketti að bráð. Ef ég yrði manneskju að bana er ég hræddur um að ég myndi aldrei líta glaðan dag framar. En í tölvuleikjum er ég ótemja og hrotti. Kannski á þetta sér eðlilega skýringu. Hver einasti dagur er stútfullur af verkefnum. Vinnu, innkaupum, leiðinlegum símtölum, eldamennsku, uppvaski og ef þú leysir ekki verkefnin hefur það afleiðingar í för með sér. Af hverju ætti ég að bæta á verkefnin í einhverjum tölvuleik á meðan ég get framið fjöldamorð án afleiðinga? Líklega er skýringin samt sú að ég er með eindæmum lélegur í tölvuleikjum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Haukur Viðar Alfreðsson Mest lesið Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson Skoðun Reykjavík er frjáls Björg Magnúsdóttir Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson Skoðun Er það hræðsla að segja nei? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Hvað er mikilvægast? Jónas Hagan Guðmundsson Skoðun Meira en Kaupmannahafnarskilyrðin Erna Bjarnadóttir Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun Þegar nýbakaðir foreldrar lenda á vegg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun
Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun
Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun