Aníta og Hafdís fá samkeppni að utan Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. janúar 2014 19:00 Hafdís og Aníta á Meistaramótinu norðan heiða síðastliðið sumar. Mynd / Gunnlaugur Júlíusson
Tveir öflugir keppendur hafa skráð sig til leiks í frjálsíþróttakeppni Reykjavíkurleikanna (e. Reykjavík International Games) sem fer í Laugardalnum þann 19. janúar. Sosthene Taroum Moguenera, 24 ára langstökkvari frá Þýskalandi, hefur boðað komu sína á leikana. Moguenera á best 7,04 metra frá því á síðasta ári. Hún var á meðal keppenda á Ólympíuleikunum í London sumarið 2012 en komst ekki í úrslit. Hún komst hins vegar í úrslit á heimsmeistaramótinu í Moskvu síðastliðið sumar. Íslandsmethafinn Hafdís Sigurðardóttir fær því heldur betur verðuga samkeppni. Norðankonan, sem keppir fyrir UFA, bætti Íslandsmet Sunnu Gestsdóttur í sumar þegar hún stökk 6,36 metra. Þá hefur 800 metra hlauparinn Aline Krebs skráð sig til leiks og gæti veitt Íslandsmethafanum Anítu Hinriksdóttur verðuga keppni. Þjóðverjinn 25 ára á best 2:03.50 mínútur utanhúss en Íslandsmet Anítu utanhúss frá því í júní er 2:00,49 mínútur. Besti tími ÍR-ingsins innanhúss, sem er um leið Íslandsmet, er hins vegar 2:03,27 mínútur og er tæplega árs gamalt. Nánari upplýsingar um frjálsíþróttakeppni Reykjavíkurleikana má finna á heimasíðu þeirra.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Enski boltinn Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Fleiri fréttir Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sakaður um svindl á HM í pílukasti Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Kolbrún María kom við sögu í endurkomu Hannover Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Barcelona með fjögurra stiga forskot inn í nýtt ár Alvöru innkoma: Kjartan með stoðsendingu gegn Celtic í sínum fyrsta leik Sandra María hetjan og með þeim markahæstu í Þýskalandi Katla skoraði annan leikinn í röð Tómas Bent og félagar unnu Rangers og náðu átta stiga forskoti á toppnum Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Næstframlagshæstur í grátlegu tapi Hildur áfram í bikarnum og Amanda enn á toppnum Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ Fékk næstum 4,5 milljóna króna sekt fyrir að sýna dómara fingurinn Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Sjá meira