Keflvíkingar áfram með hundrað prósent árangur á útivelli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. janúar 2014 19:00 Michael Craion. Mynd/Stefán
Keflvíkingar komust upp að hlið KR á toppi Dominos-deildar karla í körfubolta eftir 18 stiga sigur á KFÍ á Ísafirði í kvöld, 93-75, í lokaleik þrettándu umferðar úrvalsdeildar karla. KR og Keflavík hafa bæði 24 stig á toppnum en KR er ofar þökk sé sigri liðsins í innbyrðisleiknum í Keflavík fyrir áramót. Það er eina tap Keflavíkur í deildinni en liðið er búið að vinna alla sjö útileiki sína á tímabilinu. Það er óhætt að segja að þriðji leikhlutinn í leiknum hafi skorið sig úr en þá voru skoruð 66 stig, 33 stig hjá hvoru liði. Það höfðu aðeins verið skoruð samtals 66 stig í öllum fyrri hálfleiknum en Keflavík var 38-28 yfir í hálfleik. Keflvíkingar unnu lokaleikhlutann 22-14 og lönduðu öruggum sigri. Michael Craion skoraði 32 stig og Darrel Keith Lewis var með 25 stig, 12 fráköst og 5 stoðsendingar. KFÍ situr áfram í fallsæti eftir þetta tap en Ísfirðingar hafa nú tapað þremur síðustu leikjum sínum. Joshua Brown skoraði 36 stig fyrir KFÍ og Mirko Stefán Virijevic var með 16 stig, 15 fráköst og 6 stoðsendingar.KFÍ-Keflavík 75-93 (17-21, 11-17, 33-33, 14-22)KFÍ: Joshua Brown 36, Mirko Stefán Virijevic 16/15 fráköst/6 stoðsendingar, Ágúst Angantýsson 13/5 fráköst, Jón Hrafn Baldvinsson 7/9 fráköst, Jóhann Jakob Friðriksson 2, Valur Sigurðsson 1.Keflavík: Michael Craion 32/8 fráköst/6 stolnir, Darrel Keith Lewis 25/12 fráköst/5 stoðsendingar, Valur Orri Valsson 12/4 fráköst, Gunnar Ólafsson 11, Arnar Freyr Jónsson 7/5 fráköst/6 stoðsendingar, Aron Freyr Kristjánsson 3, Andri Daníelsson 3/4 fráköst.
Dominos-deild karla Mest lesið Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Sjá meira