Heilræði til RÚV Skjóðan skrifar 9. október 2014 10:00 RÚV hefur búið við stöðugar tekjur um langt skeið og tekjur fremur farið vaxandi.
Ríkisútvarpið (RÚV) er í slíkum fjárhagskröggum að það hefur neyðst til að leita á náðir kröfuhafa sinna og semja um frestun til áramóta á afborgun af skuldabréfi, sem var á gjalddaga í síðustu viku. Svo sem við var að búast setti Kauphöllin skuldabréf RÚV á athugunarlista við þessi tíðindi enda geta þau bent til þess að RÚV sé ógjaldfært fyrirtæki sem stefnir í gjaldþrot. RÚV hefur búið við stöðugar tekjur um langt skeið og tekjur fremur farið vaxandi. Frá skattgreiðendum fær RÚV rösklega þrjá milljarða á hverju ári. Auglýsingar, kostun og fleira skila svo um 2,2 milljörðum á ári þannig að á síðasta ári hafði RÚV úr meira en 5,3 milljörðum að spila. Frá rekstrarárinu sem lauk í ágúst 2011 höfðu tekjur RÚV aukist um meira en 7,5 prósent og samkvæmt hálfsárs uppgjöri frá því í febrúar á þessu ári standa tekjurnar því sem næst í stað á milli ára. Auglýsinga- og kostunartekjur dragast lítið eitt saman en framlag skattgreiðenda hækkar. Stjórnendur RÚV hafa haft mörg ár til að laga rekstur fyrirtækisins að þeim tekjuramma sem því er settur. Ekkert hefur gerst í sumar sem kollvarpar fjárhagsstöðu fyrirtækisins og skýrir ógjaldfærni. RÚV rekur í dag tvær útvarpsstöðvar og eina sjónvarpsstöð. Hjá fyrirtækinu hafa verið um 300 stöðugildi undanfarin ár en eitthvað hefur þeim fækkað á þessu ári. Þegar starfsmannafjöldinn er borinn saman við t.d. fjölda starfsmanna 365 miðla, sem rekur fjölda útvarpsstöðva og sjónvarpsstöðva, fyrir utan að gefa út víðlesnasta dagblað landsins og dreifa því til lesenda þá eru hjá 365 álíka mörg stöðugildi og hjá RÚV þrátt fyrir mun umfangsmeiri starfsemi. Það virðist vera RÚV um megn að keppa við einkaaðila á fjölmiðlamarkaði þrátt fyrir ríflega þriggja milljarða forgjöf frá skattgreiðendum og væna sneið af auglýsingamarkaðinum. Það ætti að vera hægt að reka eina útvarpsstöð og eina sjónvarpsstöð fyrir 2-2,5 milljarða á ári ef menn gæta hófs í yfirbyggingu og stilla sig um að yfirbjóða aðra fjölmiðla í kaupum á erlendu afþreyingarefni og útsendingarrétti frá íþróttaviðburðum. RÚV ætti að geta sinnt menningar- og öryggishlutverki sínu vel innan þess ramma sem framlög skattgreiðenda setja fyrirtækinu. Ekkert þarf að standa í vegi fyrir því að RÚV kosti rekstur sinn eingöngu með ríflega þriggja milljarða fjárframlagi skattgreiðenda, hverfi af auglýsingamarkaði og greiði af skuldabréfum sínum á réttum tíma.Skjóðan er frekju- og leiðindaskjóða, sem lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi. Skjóðan skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu á miðvikudögum.
Skjóðan Tengdar fréttir Vísitala veiðigjalda Þegar horft er annars vegar til þróunar verðlags á neysluvörum hér á landi og hins vegar þróunar á veiðigjöldum til ríkisins kann að vera vænlegt fyrir lántakendur að berjast fyrir því að verðtryggð lán miðist við vísitölu veiðigjalda fremur en neysluverðsvísitölu, sem er viðkvæm fyrir hvers kyns skattheimtu ríkisins. 24. september 2014 11:00 Kyndilberi neytendahagsmuna? MS er markaðsráðandi fyrirtæki í einokunarstöðu. Sektarálagning skiptir slík fyrirtæki litlu máli því sektinni verður velt út í verðlag og lendir á neytendum. Markaðsmisnotkun ráðandi fyrirtækja mun ekki linna fyrr en stjórnendur þeirra verða persónulega látnir sæta ábyrgð fyrir samkeppnisbrot. 1. október 2014 14:15 Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira
Vísitala veiðigjalda Þegar horft er annars vegar til þróunar verðlags á neysluvörum hér á landi og hins vegar þróunar á veiðigjöldum til ríkisins kann að vera vænlegt fyrir lántakendur að berjast fyrir því að verðtryggð lán miðist við vísitölu veiðigjalda fremur en neysluverðsvísitölu, sem er viðkvæm fyrir hvers kyns skattheimtu ríkisins. 24. september 2014 11:00
Kyndilberi neytendahagsmuna? MS er markaðsráðandi fyrirtæki í einokunarstöðu. Sektarálagning skiptir slík fyrirtæki litlu máli því sektinni verður velt út í verðlag og lendir á neytendum. Markaðsmisnotkun ráðandi fyrirtækja mun ekki linna fyrr en stjórnendur þeirra verða persónulega látnir sæta ábyrgð fyrir samkeppnisbrot. 1. október 2014 14:15