Blokkin hennar Birnu að fyllast Gissur Sigurðsson og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 29. október 2014 13:45 Lengi vel bjó Birna Sverrisdóttir, stundum kölluð Birna í blokkinni, ein í blokkinni sem stendur við Stamphólsveg í Grindavík.
Stærsta fjölbýlishúsið í Grindavík, sem gnæft hefur nánast mannlaust yfir bæinn í þónokkur ár, hefur nú skyndilega öðlast líf og eru allar 32 íbúðirnar að fyllast af fólki. Þetta stendur í beinum tengslum við að sjávarútvegsfyrirtækið Vísir í Grindavík er að hætta fiskvinnslu á Djúpavogi og á Húsavík og hefur boðið starfsfólki á þesusm stöðum störf í Grindavík. Lengi vel bjó Birna Sverrisdóttir, stundum kölluð Birna í blokkinni, ein í blokkinni sem stendur við Stamphólsveg í Grindavík. Í samtali við Vísi í apríl sagðist hún fagna því að von væri á nágrönnum. „Þetta er bara eintóm hamingja. Ég hlakka til að fá fólk og börn og líf í húsið,“ sagði Birna og bætti við að það hefði þó aldrei farið illa um hana í húsinu. Róbert Ragnarsson bæjarstjóri segist fagna þessum nýju íbúum. „Þegar að lá fyrir að talsvert margt fólk væri að flytja hingað sem fylgdi þeim störfum sem Vísir var að setja upp hérna sá verktakinn sér tækifæri í því að kaupa fjölbýlishúsið, klára það og koma tuttugu íbúðum á leigumarkað. Þær hafa farið út hratt bæði til þeirra sem eru að koma til að vinna hjá Vísi og annarra sem beðið hafa á vinnumarkaði,“ segir Róbert í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Húsið er staðsett svo ofarlega í bænum að við sjáum að það er komið mikið líf í kringum húsið. Gaman að því að sjá ljós í glugga og fólk á ferli. Verslun og þjónusta verða vör við þegar það koma fimmtíu nýir íbúar. Þetta er ánægjuleg þróun og er að setja jákvæðan svip á samfélagið.“
Tengdar fréttir Áframhaldandi fiskvinnsla á Djúpavogi Fiskvinnsla hefst á Djúpavogi undir merkjum Búlandstinds um næstu áramót. Vísir hf. hefur selt fyrirtæki á staðnum, Ósnesi, hlutafé sitt í Búlandstindi á 500 þúsund krónur. 29. október 2014 11:27 Flugu þvert yfir Ísland til að skoða nýjan vinnustað Tæplega þrjátíu starfsmenn fiskvinnslu Vísis hf. á Djúpavogi héldu í morgunsárið í dagsferð til Grindavíkur. 15. maí 2014 10:16 Eintóm hamingja að fá loks nágranna Birna í blokkinni hefur búið ein í tuttugu og þriggja íbúða blokk í nærri sex ár. 30. apríl 2014 13:26 Neyðast til að flytja þvert yfir landið Justyna Gronek og fjölskylda hennar hefur búið á Húsavík í fimm ár. Þau flytja nú til Grindavíkur þrátt fyrir að hafa nýlega fest kaupa á íbúð á Húsavík. 30. apríl 2014 07:00 Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Sjá meira
Áframhaldandi fiskvinnsla á Djúpavogi Fiskvinnsla hefst á Djúpavogi undir merkjum Búlandstinds um næstu áramót. Vísir hf. hefur selt fyrirtæki á staðnum, Ósnesi, hlutafé sitt í Búlandstindi á 500 þúsund krónur. 29. október 2014 11:27
Flugu þvert yfir Ísland til að skoða nýjan vinnustað Tæplega þrjátíu starfsmenn fiskvinnslu Vísis hf. á Djúpavogi héldu í morgunsárið í dagsferð til Grindavíkur. 15. maí 2014 10:16
Eintóm hamingja að fá loks nágranna Birna í blokkinni hefur búið ein í tuttugu og þriggja íbúða blokk í nærri sex ár. 30. apríl 2014 13:26
Neyðast til að flytja þvert yfir landið Justyna Gronek og fjölskylda hennar hefur búið á Húsavík í fimm ár. Þau flytja nú til Grindavíkur þrátt fyrir að hafa nýlega fest kaupa á íbúð á Húsavík. 30. apríl 2014 07:00