Verkum hann! Skerum hann! Frystum hann! Guðmundur Andri Thorsson skrifar 27. janúar 2014 12:00 Étum hann! Steikjum hann! Grillum hann! Sjóðum hann! Drekkum hann! Veiðum hann! Gerum svo eitthvað við hann!Lögmál framspurnar og eftirboðs Brýningar hvalveiðimanna til þjóðarinnar um nýtingu afurðanna verða með hverju misserinu ævintýralegri – og örvæntingarfyllri. Þar sem matvörur eru annars vegar – og raunar húsbyggingar líka – hafa íslenskir ráðamenn alla tíð haft megna vantrú á tilgátu hagfræðinnar um tengsl framboðs og eftirspurnar – en talið affarasælla að framleiðendur bjóði upp á framboð að bestu manna yfirsýn í trausti þess að þá fylgi eftirspurnin. Þetta fyrirkomulag hefur líka gengið býsna vel hér á landi – það er að segja fyrir framleiðendur – en af einhverjum ástæðum hefur á heimsvísu orðið bið á árangrinum af hinum þrautreyndu þjóðlegu aðferðum við markaðssetningu á hvalaafurðum, jafnvel þótt heimurinn hafi verið rækilega minntur á að hér sé nú aldeilis hvalkjöt á boðstólum; hvalurinn hreinlega veiddur beint fyrir framan nefið á felmtruðu erlendu ferðafólki sem hingað er komið um langan veg til að skoða káta hvali skoppandi á öldum hafsins í glöðum leik undir norðurljósum og svo bara birtist skyndilega sjálfur Eirab skipstjóri æði ófrýnilegur með morðglampa í augum og skutul í klónum, enn á eftir sínum eilífðar hvíta hval. Það mun nú fullreynt að markaðir erlendis fyrir hvalaafurðir eru ekki nógir til að forsvaranlegt sé að halda veiðunum áfram. Og skal þeim þó haldið áfram samt, hvað sem það kostar. Hvers vegna? Vegna þess að þannig gerum við hér á landi. Þá er að sannfæra þjóðina um að það sé þegnleg skylda sérhvers góðs Íslendings að gera sér enn meiri mat úr þessum skepnum en orðið er, enda vita landsmenn sem er að það verður að gera fleira en gott þykir þegar matur er annars vegar: maður verður að láta sér fleira gott þykja en gott þykir. Það er að segja: Þræla þessu í sig.Hvíti hvalurinn í stofunni Verkum hann! Skerum hann! Frystum hann! Fyrir alla muni: kveljum hann! og veiðum hann! Til hvers? Hvers vegna að skjóta þá? Svarið lætur ekki á sér standa: Jú, það er út af þjóðarstoltinu. Íslenskri þjóðmenningu. Hefðum okkar. Að vísu stunduðu Íslendingar ekki hvalveiðar fyrr en liðið var á tuttugustu öldina en það má sjálfsagt bráðum fara að kalla hana liðnar aldir og gráa forneskju, svona með góðum vilja. Samt sem áður vaknar enn spurningin: Á maður að vera stoltur yfir því að veiða með ærnum tilkostnaði og ómældri fyrirhöfn alþjóðlega flökkustofna sem enginn vill kaupa afurðirnar af en allir hafa skömm á athæfinu? Já já, það eigum við það vera, er svarið, það er okkar réttur að sýna heiminum mótþróa. Hvers vegna? Og svarið: Vegna þess að þannig gerum við hlutina hér. Og þess vegna eigum við nú að þræla hvalnum í okkur í þessum nýja bjór sem farið er að framleiða með sérstökum manneldismarkmiðum og undanþágum Framsóknarráðherrans sem kennir sig við auðlindir, og tók fram í fyrir hendurnar á heilbrigðisfulltrúa þegar ekki átti að leyfa framleiðsluna. Mörgum þykir fara vel á því á þorrablótunum að skola grámetinu niður með virkilega bragðvondum bjór – og þar með góðum, því eins og kunnugt er verður maturinn að margra mati því fýsilegri sem hann bragðast verr. Það á nefnilega að vera hetjudáð að gera sér glaðan dag á Íslandi. Þannig gerum við hlutina hér. Þessi hvalameinloka – að halda gangandi rándýrum veiðum í engu skyni öðru en að svala mótþróaröskunarfýsn – er um margt dæmigert fyrir þær sérlausnir í stóru og smáu sem okkur Þorraþrælum er gert að búa við hér í landi hinnar eilífu undanþágu frá því sem blasir við öðrum að gera. Fólki verður tíðrætt um bleikan fíl í stofu þegar reynt er að finna lausnir á vanda launafólks og þeirra sem reyna að standa í raunverulegum fyrirtækjarekstri hér, og er þar átt við krónuna og það gjald sem almenningur þarf að greiða fyrir notkun hennar, hvort sem það birtist í smánarlega lágum launum, okurvöxtum eða frámunalegu verðlagi. Krónunni er haldið gegnum þykkt og þunnt og okkur sagt að hún hreyfi við helgustu tilfinningum sérhvers Íslendings þó að við vitum svo sem að hún þjónar fyrst og fremst útgerðarmönnum og öðrum útflytjendum og er auk þess að sögn helstu talsmanna hennar dýrmætt hagstjórnartæki fyrir ráðamenn því hún gerir þeim kleift að skerða kjör almennings og lækka laun út í það óendanlega og halda fólki á eilífri heljarþröm þar sem sérhver mánaðamót eru æsispennandi eltingaleikur við enda sem aldrei ná saman en fjarlægjast hver annan í sífellu. Krónan er er hvíti hvalurinn í stofunni. Hvalreki sumum en kvalræði flestum. Af hverju er þá ekki hægt að skipta um gjaldmiðil? Svarið: Það jafngildir uppgjöf. Krónan er helgasti frumburðarréttur sérhvers Íslendings. Við verðum bara að halda þetta út fram að næstu bólu. Þannig gerum við hlutina hér. Veiðum hann! Skerum hann! Verum hann! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Andri Thorsson Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar