Frábær endakafli hjá Einari Kristni - komst í seinni ferðina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2015 19:01 Einar Kristinn Kristgeirsson. Vísir/Getty
Einar Kristinn Kristgeirsson náði 55. sæti í fyrri ferð í stórsvigi karla á HM í alpagreinum sem fer fram í Vail og Beaver Creek í Bandaríkjunum. Einar Kristinn tryggði sér þar með aðra ferð seinna í kvöld. Einar Kristinn byrjaði ekki vel og var í 66. sæti eftir fyrsta millitíma en hann átti frábæran endasprett og kom í mark með 52. besta tímann, 7.89 sekúndum á eftir efsta manni. Tími Einars var upp á 1:23.07 mínútur. Alls kláruðu 78 skíðamenn fyrri ferðina. Bosníumaður, Rúmeni og Króati áttu síðan eftir að skíða hraðar en Einar og komast þar með upp fyrir hann. Einar Kristinn hélt sæti hinsvegar sínu meðal sextíu efstu sem þýðir að hann keppir aftur í kvöld. Magnús Finnsson komst ekki í gegnum undankeppnina og fékk því ekki að taka þátt í aðalkeppninni í dag. Þetta er önnur greinin í röð sem íslenskur keppandi kemst í seinni ferðina en Helga María Vilhjálmsdóttir náði því í stórsvigi kvenna í gær. Helga María endaði síðan í 56. sætinu. Austurríkismaðurinn Marcel Hirscher er með besta tímann eftir fyrri ferðina í stórsviginu en hann kláraði 0,18 sekúndum á undan Roberto Nani frá Ítalíu og 23 sekúndubrotum á undan Felix Neureuther frá Þýskalandi.
Íþróttir Mest lesið Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Handbolti Vildi tapa legg: „Mesti hávaði sem ég hef heyrt“ Sport Salah færði Egyptum draumabyrjun Fótbolti Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Sagði látna systur sína hafa tryggt sigurinn ótrúlega Sport Dagskráin í dag: Kæst yfir NFL, pílu og enska boltanum Sport Fleiri fréttir Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Dagskráin í dag: Kæst yfir NFL, pílu og enska boltanum Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Vildi tapa legg: „Mesti hávaði sem ég hef heyrt“ Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Sagði látna systur sína hafa tryggt sigurinn ótrúlega Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Hættur aðeins þrítugur Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Frelsaði fjárfestirinn Dani Alves gefur sjálfum sér samning Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Mbappé breytti um fagn af góðu tilefni „Allir virðast elska hann“ Stjörnuútherji Steelers sló til áhorfenda í miðjum leik Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin Stórstjarna úr WNBA-deildinni í heimsókn á Íslandi Mætir öldungnum sem breytti lífi hans Missti af tveimur mánuðum eftir að hafa slasast við að tengja sjónvarpið „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjá meira