Sér Mourinho eftir að hafa látið Salah fara? Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. mars 2015 18:00 Salah var hetja Fiorentina gegn Juventus í gær. vísir/getty
Egyptinn Mohamed Salah hefur heldur betur öðlast nýtt líf síðan hann var lánaður frá Chelsea til ítalska liðsins Fiorentina. Flórensliðið fékk Salah að láni á lokadegi félagaskiptagluggans en lánssamningurinn var hluti af félagaskiptum Juans Cuadrado til Chelsea en Lundúnaliðið greiddi auk þess um 23 milljónir fyrir Kólumbíumanninn. Salah kom til Chelsea frá svissneska meistaraliðinu Basel í janúar 2014 en náði aldrei að festa sig í sessi hjá Lundúnaliðinu. Egyptinn lék aðeins 18 leiki í bláu treyjunni og skoraði tvö mörk, annað þeirra í 6-0 sigrinum á Arsenal 22. mars 2014. Salah hefur hins vegar blómstrað hjá Fiorentina. Hann skoraði ekki í fyrsta leik sínum fyrir félagið en hefur síðan skorað sex mörk í jafn mörgum leikjum. Þrjú þessara marka hafa komið í Serie A. Salah skoraði sitt fyrsta mark fyrir Fiorentina í 1-3 sigri á Sassuolo og skoraði síðan mark Flórensliðsins í 1-1 jafntefli við Torino. Egyptinn skoraði svo sigurmarkið gegn Inter um helgina. Salah hefur skorað eitt mark í Evrópudeildinni - í 2-0 sigrinum á Tottenham í seinni leiknum í 32-liða úrslitunum - og skoraði svo bæði mörk Fiorentina í 1-2 sigri á Juventus á útivelli í fyrri leik liðanna í undanúrslitum ítölsku bikarkeppninnar. Cuadrado bíður hins vegar enn eftir sínu fyrsta marki fyrir Chelsea en hann hefur komið við sögu í sex leikjum liðsins á tímabilinu.
Enski boltinn Ítalski boltinn Tengdar fréttir Cuadrado orðinn leikmaður Chelsea José Mourinho fær mjög öflugan kólumbískan landsliðsmann til liðs við sig. 2. febrúar 2015 18:52 Chelsea fær Cuadrado en missir tvo Síðasti dagur félagaskiptagluggans er runninn upp og einhverjir knattspyrnumenn munu hafa vistaskipti í dag. 2. febrúar 2015 10:45 Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Sjá meira
Cuadrado orðinn leikmaður Chelsea José Mourinho fær mjög öflugan kólumbískan landsliðsmann til liðs við sig. 2. febrúar 2015 18:52
Chelsea fær Cuadrado en missir tvo Síðasti dagur félagaskiptagluggans er runninn upp og einhverjir knattspyrnumenn munu hafa vistaskipti í dag. 2. febrúar 2015 10:45