Bolt hljóp á sama tíma í úrslitum og sigraði Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. júlí 2015 20:40 Usain Bolt kemur í mark í Lundúnum í kvöld. vísir/getty
Usain Bolt olli engum vonbrigðum í úrslitahlaupinum á Afmælisleikunum í Lundúnum í kvöld, en hann kom fyrstur í mark á 9,87 sekúndum. Hann hljóp á sama tíma í undanúrslitunum fyrr í kvöld, en keppt er á Ólympíuleikvanginum í Lundúnum þar sem hann vann þrenn gullverðlaun fyrir þremur árum síðan. Michael Rodgers frá Bandaríkjunum varð annar á 9,90 sekúndum og Kemar Bailey-Cole frá Jamaíku varð þriðji á 9,92 sekúndum. Bailey-Cole vann gull ásamt Bolt í 100 metra boðhlaupi á ÓL 2012 og HM 2013. „Í heildina var þetta gott hlaup. Ég vildi reyna að hlaupa hraðar í úrslitum, en þetta er allt að koma hjá mér. Þetta gekk ágætlega, en ég byrjaði ekki alveg nógu vel,“ sagði Bolt í viðtali við BBC eftir hlaupið.Einvígi Gatlins og Bolts verður ein af stóru sögunum á HM 2015.vísir/gettyEinvígi í Peking Þetta er besti tími Bolts á árinu, en hann hefur lítið getað keppt vegna meiðsla undanfarin misseri. Hann virðist þó vera klár í heimsmeistaramótið sem hefst í Peking í lok ágúst. Barátta hans og Bandaríkjamannsins Justins Gatlins ætti að verða rosaleg, en Gatlin hefur verið í miklu stuði undanfarin misseri og unnið 26 hlaup í röð. Gatlin á besta tíma ársins sem eru 9,74 sekúndur, en Bolt hljóp á 9,87 í kvöld í rigningu og mótvindi.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppnum Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Féll í yfirlið í miðjum leik Eggert Þór komst í 8-liða úrslit Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram „Klappað fyrir manni þegar maður mætti“ Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Tékki til Njarðvíkur „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Sjá meira