Annar sigur Íslands í Eistlandi Anton Ingi Leifsson skrifar 22. ágúst 2015 16:15 Hörður Axel var stigahæstur í íslenska liðinu. vísir/daníel
Ísland vann tíu stiga sigur, 86-76, á Filipseyjum á æfingarmóti í Eistlandi í dag, en þetta var annar sigur Íslands af þremur á mótinu. Ísland tapaði einungis fyrir heimamönnum á mótinu og lenda að öllum líkindum í öðru sæti á mótinu. Ísland byrjaði vel og leiddi með sex stigum eftir fyrsta leikhlutann, 22-16. Í öðrum leikhlutanum var svipað uppá teningnum. Ísland hélt góðri forystu og komst mest fimmtán stigum yfir, 46-31, en staðan í hálfleik var 46-38 Íslandi í vil. Í þriðja leikhluta voru Filipseyingar sterkari. Þeir söxuðu hægt og rólega á forskot Íslands og komust meðal annars yfir 49-48 þegar þrjár mínútur voru liðnar af þriðja leikhluta. Íslenska liðið átti í vandræðum, en náði þó góðum sprett og leiddi eftir þriðja leikhlutann með sex stigum, 62-56. Í fjórða leikhlutanum reyndist þetta formsatriði fyrir Ísland sem vann að lokum tíu stiga sigur, 86-76. Hörður Axel Vilhjálmsson var stigahæstur með nítján stig í íslenska liðinu, en næstir komu Martin Hermansson með fimmtán og Helgi Magnússon með ellefu. Logi Gunnarsson gerði tíu, Jakob Sigurðarson níu, Brynjar Þór Björnsson átta, Pavel Ermolinskij sex sem og Hlynur Bæringsson og Ægir Steinarsson skoraði tvö stig. Andray Blatch var stigahæstur hjá Filipseyingum með 22 stig, en næstur kom Terrence Romeo með ellefu stig. Holland og Eistland spila síðar í dag og þá kemur í ljós í hvaða sæti Ísland lendir í á mótinu. Mótið er liður í undirbúningi Íslands fyrir Eurobasket, en riðill Íslands fer fram í Berlín í september.
EM 2015 í Berlín Mest lesið Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Fótbolti Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Dagskráin í dag: Risa leikur í Bestu deildinni og úrslitin ráðast á U.S. Open Sport Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Golf Hefja viðræður um kaup á Tonali Enski boltinn Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Fótbolti „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Golf Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Sport Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Sjá meira