Friðrik Ingi: Bonneau meiddist úti en sleit hásinina hér heima Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. október 2015 22:30
Stefan Bonneau, leikstjórnandi Njarðvíkur í Dominos-deild karla í körfubolta, verður ekki með liðinu framan af vetri vegna meiðsla eins og greint hefur verið frá. Bonneau sleit hásin skömmu eftir að hann kom til landsins en var sett spurningamerki við hvort hann hefði mætt til landsins með slitna hásin.Sjá einnig:Sjáðu Súpermantroðslu Bonneau „Svo því sé haldið til haga þá slítur hann hásin eftir að hann kom til Íslands en hafði greinilega eitthvað meitt sig úti. Það var bara ekki á þeim tíma vitað að það væri með þessum hætti,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkur, í upphitunarþætti Dominos-Körfuboltakvölds á Stöð 2 Sport í kvöld. „Það að hann meiðist og verður ekki með okkur hefur áhrif en að öðru leyti held ég að menn hafi ekkert verið að missa sig yfir þessum fréttum hvort hann hafi verið meiddur áður en hann kom eða hversu mikið. Það er ekkert í okkar höndum og við getum ekkert stjórnað því,“ sagði Friðrik Ingi, en hversu svekktur var hann að heyra fréttirnar á skalanum 1-10?Sjá einnig:Sjáðu allar galdrakörfur Bonneau í lýsingu Svala: „Hann er bara skyr og massi“ „Bara Fimm. Auðvitað breytir þetta miklu, en maður er orðinn reynslumeiri og yfirvegaðri. Maður hefur lært að hemja sig með svona hluti. Það getur alltaf ýmislegt gerst.“ Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Dominos-deild karla Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira