Margrét Rósa með 67 prósent þriggja stiga skotnýtingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. nóvember 2015 14:00 Margrét Rósa Hálfdanardóttir. Vísir/Stefán
Margrét Rósa Hálfdanardóttir gat ekki hjálpað íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta í leikjunum á móti Ungverjum og Slóvakíu í undankeppni EM en hún er í stóru hlutverki hjá körfuboltaliði Canisius-háskólans. Margrét Rósa átti enn á ný góðan leik í nótt þegar Canisius vann 80-50 heimasigur á Binghamton-skólanum. Margrét Rósa skoraði 14 stig á 23 mínútum og var stigahæst í liðinu. Næststigahæsti leikmaðurinn var síðan landa hennar Sara Rún Hinriksdóttir með 12 stig. Sara Rún Hinriksdóttir er nýliði hjá Canisius-liðinu og þetta var hennar besti leikur til þessa en Sara skoraði 12 stig á 15 mínútum. Sara Rún hitti meðal annars úr báðum þriggja stiga skotum sínum í leiknum og Margrét Rósa setti niður 3 af 4 þriggja stiga skotum sínum. Saman hittu íslensku stelpurnar því úr 5 af 6 þriggja stiga skotum sínum. Íslenska kvennalandsliðið saknaði líka Söru í leikjunum en báðar voru þær tvær af þremur stigahæstu leikmönnum landsliðsins í fyrstu sex landsleikjum ársins. Þetta var þriðji leikurinn í röð þar sem Margrét Rósa er stighæst hjá Canisius-háskólaliðinu en hún skoraði 19 stig í sigri á Saint Francis og 12 stig í tapi á móti Buffalo-skólanum. Margrét Rósa hefur skorað 12,5 stig að meðaltali í leik í fyrstu fjórum leikjum tímabilsins en Sara Rún er með 5,8 stig að meðaltali á 12,3 mínútum í leik. Margrét Rósa hefur nýtt skotin sín frábærlega í þessum fyrstu fjórum leikjum vetrarins en hún er meðal annars með 67 prósent þriggja stiga nýtingu, hefur nýtt 10 af 15 skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Arnar missti af ræsingu en vann: „Ha? Eru þau farin?“ Sport Fékk hafnabolta í andlitið á 170 km hraða Sport Fá 500 þúsund dollara fyrir að skipta frá Jamaíka yfir til Tyrklands Sport „Einn skemmtilegasti veturinn sem ég hef tekið þátt í“ Sport Spenntari fyrir NFL en EM: „Við horfum á einhverja leiki“ Sport Fylkir ennþá bara unnið einn leik í deild Sport Fimm spennandi leikmenn af EM U-21 Sport Fyrrum hollenskur landsliðsmaður framseldur til Hollands Sport Dagskráin í dag: Besta deild kvenna og Golfið heldur áfram Sport Ísland lýkur leik í 11. sæti á Billie Jean King Cup Sport Fleiri fréttir Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Dolezaj til liðs við nýliðana Álftnesingar krækja í lykilmann Keflavíkur ÍR-ingar næla sér í leikmann úr Íslandsmeistaraliði Stjörnunnar Hætta í miðju úrslitaeinvígi og enginn meistari krýndur Dóttirin talar íslensku: Í úrslitum NBA og meira tengd Íslandi en áður Þrumuleikur frá Jalen Williams og Thunder einum sigri frá titlinum Semja við íslenska kjarnann í liði Íslandsmeistaranna Ótrúleg endurkoma og allt jafnt í úrslitaeinvíginu Hin stórstjarna Celtics þurfti einnig að fara undir hnífinn Áhorfið minnkaði um 55 prósent eftir að Caitlin Clark meiddist Íslandsmeistarinn getur orðið NBA meistari Sigtryggur Arnar framlengdi við Tindastól Óvænt stjarna með súperinnkomu af bekknum þegar Pacers komst í 2-1 Þegar neyðin er mest er Caruso næst Kraftaverkamaðurinn Gunnar Már sem þjálfarinn kallar Jesús Júlíus Orri semur við Tindastól Drungilas næstu þrjú árin hjá Tindastóli Sjá meira