Arnór Þór markahæstur í tapi gegn Kiel Anton Ingi Leifsson skrifar 27. desember 2015 19:02 Arnór Þór í landsleik. vísir/eva björk
Kiel minnkaði forskot Rhein-Neckar Löwen niður í tvö stig á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta með þriggja marka sigri á Íslendingarliðinu Bergrischer, 31-28. Mjög lítið var skorað fyrstu mínúturnar og staðan eftir fjórtán mínútna leik var 4-3, Kiel í vil. Þá kom góður kafli hjá Kiel og þeir leiddu með fimm mörkum í hálfleik, 15-10. Í síðari hálfleik héldu þeir uppteknum hætti, að minnsta kosti fyrri hluta hálfleiksins. Þeir stigu þó aðeins af bensíngjöfinni, en þegar stundarfjórðungur var eftir var munurinn einungis tvö mörk, 25-23. Nær komust þó heimamenn í Bergrischer ekki og lokatölur þriggja marka sigur Kiel, 31-28. Kiel er nú stigi á eftir Rhein-Neckar Löwen þegar tuttugu leikir af 34 eru búnir. Arnór Þór Gunnarsson var markahæstur í liði Bergrischer með sjö mörk, þar af tvö úr vítum, ásamt Viktor Szilagyi. Arnór klikkaði á einu skoti í leiknum. Björgvin Páll Gústavsson varði tólf skot samkvæmt opinberri heimasíðu þýska sambandsins. Hjá Kiel drógu þeir Niclas Ekberg (átta mörk), Domagoj Duvnjak (sex mörk) og Marko Vujin (fimm mörk) vagninn, en Niklas Landin varði tíu skot í markinu. Bergrischer er í fallsæti, því sautjánda, stigi frá öruggu sæti. Nú fer deildin í frí, enda EM í Póllandi í janúar.
EM 2016 karla í handbolta Handbolti Mest lesið Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Bauluðu á verðandi US Open meistara Golf Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Körfubolti Einum mánuði yngri en Eiður Smári Íslenski boltinn Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Enski boltinn Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Fótbolti Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Enski boltinn Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Fótbolti Grænhöfðaeyjar komu aftur á óvart og sögulegt hjá Mo Salah og félögum Fótbolti Fleiri fréttir Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Sjá meira