Orð eru til alls fyrst Skjóðan skrifar 14. janúar 2015 13:00 Ástæða er til að fagna því að forsætisráðherra skuli hafa tekið forystu um að byggja nýjan spítala. vísir/vilhelm
Eftir nokkurn barning náðust loks samningar um kaup og kjör lækna. Þó að innihald þeirra sé ekki orðið opinbert er ljóst af kröfum lækna að launahækkunin er mjög mikil og líklega umfram það sem eðlilegt getur talist eða nauðsynlegt. Ein ástæða þess að læknar fengu sitt fram er sú að þeir höfðu yfirhöndina í samningaviðræðunum við ríkið. Án vel menntaðra lækna verður ekki rekið heilbrigðiskerfi. Læknar höfðu fólkið í landinu einnig í liði með sér. Almenningur lítur á það sem hluta af kjörum og velferð að hafa aðgang að góðu og vel mönnuðu heilbrigðiskerfi. Þó má búast við að læknasamningarnir dragi dilk á eftir sér þegar kemur að því að semja við aðrar heilbrigðisstéttir sem og á almennum vinnumarkaði. Ástæða er til að fagna því að forsætisráðherra skuli hafa tekið forystu um að byggja nýjan spítala. Að sönnu er ekki samstaða um framkvæmdina, umfang hennar eða staðsetningu nýs spítala. Eftir er að fjármagna byggingu og tæki og marka stefnu til framtíðar í heilbrigðismálum. Slík stefna verður að innihalda raunhæfar áætlanir um fjármögnun, rekstur og viðhald tækja og mannafla. Varlega áætlað kostar bygging nýs spítala 100 milljarða. Ýmsar leiðir standa til boða við fjármögnun og rekstur hans. Ríkið getur selt hluta ef eign sinni í Landsbankanum og aflað þannig 40-50 milljarða. Alþingi getur ákveðið að hluti tryggingargjalds renni til reksturs spítalans. Alþingi getur líka ákveðið að afla fjár til byggingar eða reksturs spítalans með því að leggja á sérstakt viðbótarauðlindagjald. Þá er hægt að láta lífeyrissjóði landsins fjármagna t.d. 40 milljarða með láni á eins prósents vöxtum. Allir Íslendingar hafa hag af því að byggður verði nýr spítali sem jafnast á við það sem best gerist annars staðar í heiminum. Launakjör eru ekki hið eina sem ræður ákvörðun lækna um starfsstað. Tæknivæddur og vel hýstur spítali heldur í gott fólk og bætir aðbúnað sjúklinga. Okkur hinum, sem ekki störfum við heilbrigðiskerfið, líður betur að vita af öruggu heilbrigðiskerfi og traustum spítala. Án efa mun nýr spítali efla bjartsýni landans. Vitanlega er einn, nýr spítali í Reykjavík ekki nóg til að reisa heilbrigðiskerfið við. Það er mikilvægt fyrir byggð í landinu og ferðaþjónustu að hringinn í kringum landið verði ofið sterkt net öflugra heilbrigðisstofnana. Það verður að vera hluti af framtíðarstefnumótun í heilbrigðismálum. En orð eru til alls fyrst.Skjóðan skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu á miðvikudögum. Hún er frekju- og leiðindaskjóða, sem lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi.
Skjóðan Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Sjá meira