KR-ingar geta orðið Íslandsmeistarar í Síkinu í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. apríl 2015 06:00 Myron Dempsey spilar væntanlega með Tindastóli í kvöld. Vísir/Stefán
KR-ingar geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð í kvöld þegar Vesturbæjarliðið heimsækir Tindastól í Síkið á Sauðárkróki í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvígi Domino's-deildar karla. KR-ingar hafa unnið báða heimaleiki sína í einvíginu með 16,5 stigum að meðaltali en Stólarnir unnu leik tvö á Króknum, 80-72 og hafa ekki tapað á móti KR-liðinu í Síkinu í vetur. Þetta gæti líka orðið fyrsti leikur bandaríska miðherjans Myron Dempsey í einvíginu en hann varð fyrir höfuðhöggi á æfingu fyrir leik númer eitt og hefur ekkert verið með síðan. Lyfti KR-ingar Íslandsbikarnum á Króknum í kvöld verður það fimmta liðið á síðustu sex árum sem vinnur titilinn á útivelli en það gerðu KR-ingar meðal annars bæði 2011 (í Garðabæ) og 2014 (í Grindavík). Íslandsbikarinn hefur líka einu sinni áður farið á loft í Síkinu en Njarðvíkingar tryggðu sér titilinn í húsinu fyrir fjórtán árum síðan. Vinni Stólarnir leikinn í kvöld verða þeir fyrstu nýliðarnir í sögu úrslitakeppninnar sem komast alla leið í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn.Leikurinn hefst klukkan 19.15 og er í beinni á Stöð 2 Sport.
Dominos-deild karla Mest lesið Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Fótbolti Man United ósátt við Marokkó og FIFA Enski boltinn Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti KSÍ missti af meira en milljarði króna Fótbolti Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Sport Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Enski boltinn Kona vann Ísmaraþonið á Suðurskautslandinu í fyrsta sinn Sport Fleiri fréttir Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Kjartan Atli lætur af störfum Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Curry sneri aftur með miklum látum Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Sjá meira