Trump tapaði í Ohio - Rubio er hættur 16. mars 2016 07:20 Vísir/AP
Baráttan um útnefningu forsetaefna í Bandaríkjunum heldur áfram þrátt fyrir viðburðarríkan gærdag þar sem kosið var í fjölda ríkja. Auðkýfingurinn Donald Trump fór með sigur af hólmi í ríkjunum Illinois, Norður Karólínu og einnig í Flórída. Hann beið hinsvegar ósigur í Ohio fyrir John Kasich, sem er reyndar ríkisstjóri Ohio og því vel þekktur þar á bæ, enda var þetta fyrsti sigur hans í forkosningunum hingað til. Ósigur Trump í Ohio þýðir að spennan heldur áfram hjá Repúblikönum en hefði hann haft betur þar hefði hann svo gott sem tryggt sér útnefninguna. Sigur Trump í Flórída þýddi að Marco Rubio, sem lengst af hefur verið talinn á meðal tveggja helstu keppinauta Trumps, hefur játað sig sigraðan og dregið sig út. Flórída er heimaríki hans og sigur þar var lífsnauðsynlegur upp á framhaldið. Hjá Demókrötum eykst bilið enn á milli Hillary Clinton og Bernie Sanders og virðist fátt geta komið í veg fyrir að hún hreppi tilnefningu flokks síns. Clinton fór með sigur af hólmi á fjórum stöðum í gær, í Flórída, Ohio, Illinois og Norður Karólínu og virðist fátt geta stöðvað hana. Enn á eftir að birta tölur í Missouri hjá bæði Demókrötum og Repúblikönum.
Donald Trump Mest lesið „Ástandið er að versna“ Erlent Konan „terroríseri“ alla í hryllingshúsinu Innlent Ekki standi til að sækja strandveiðiheimildir í aflamarkskerfið Innlent Segist „eiginlega sammála“ ákvörðun Amgen Innlent Skjálfti 4,8 að stærð í Bárðarbungu Innlent „Engin örugg skref, bara eitt illa unnið pennastrik“ Innlent Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Innlent Ný stjórn Ungra umhverfissinna kjörin Innlent Kári segist hafa verið rekinn vegna lygasögu Innlent Gekk inn á lögreglustöðina í annarlegu ástandi og var snarlega handtekinn Innlent Fleiri fréttir „Ástandið er að versna“ Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Aldrei fleiri stríð í heiminum síðan í síðari heimsstyrjöld Ráðherra segir að Ísraelar muni ekki fara aftur frá Gasa Árásarmaðurinn í Uppsölum handtekinn Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Ætla að hernema Gasaströndina Segir réttarríkið standa í vegi sínum Afstýrðu sprengjutilræði á tveggja milljóna manna tónleikum Lady Gaga Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Til marks um „skringilega“ skautun víða um heim Ekki nein þörf á notkun kjarnorkuvopna og vonar að svo verði ekki Föður rafmyntajöfurs rænt og skorinn af honum fingur Fjarhægrimaður sigurstranglegastur í forsetakosningum Rúmena Fimm handteknir grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Hafnaði hermönnum Trump: „Fullveldið er ekki til sölu“ PAP vann stórsigur í Singapúr Innsti hringur Trump í skærum við þýsk yfirvöld Verkamannaflokkurinn bar sigur úr býtum Íbúar Nuuk orðnir tuttugu þúsund Maður sem lét snáka bíta sig 200 sinnum lykill að tímamótamóteitri Umsetin af krókódílum í 36 klukkutíma eftir nauðlendingu Birti mynd af sér í páfaskrúða Sögulegur sigur Umbótaflokks og skipbrot stóru flokkanna tveggja Kosningar í Ástralíu: Fylgi Íhaldsflokksins dvínar vegna framgöngu Trump Fyrirgefur fjölskyldunni og leitar sátta Gera úkraínsk ungmenni að sjálfsmorðssprengjumönnum Brand fær að ganga laus á meðan réttað er yfir honum Sjá meira