Nú er mál að linni Óttar Guðmundsson skrifar 23. apríl 2016 07:00 Höfundar Íslendingasagna höfðu megnustu óbeit á Svíum. Fjölmargir óbótamenn og flækningar á söguöld voru sænskrar ættar eins og farandverkamaðurinn Glámur í Grettissögu, smákrimmarnir Leiknir og Halli í Eyrbyggjasögu og melludólgurinn Gilli í Laxdælu. Á miðöldum komust sænskir yfir fjölmörg ómetanleg handrit sem þeir neita að skila. Íslenskir handboltamenn biðu venjulega lægri hlut fyrir Svíum á liðinni öld. Fjandskapur Svía gagnvart Íslendingum náði áður óþekktum hæðum nýlega. Sænskir blaðamenn komu til landsins í þeim tilgangi einum að gera lítið úr forsætisráðherra landsins. Þeir göbbuðu hann í viðtal og spurðu hann óvæntra og ósvífinna spurninga um löngu gleymd viðskipti. Forsætisráðherra vafðist eðlilega tunga um tönn enda var hann þessum lúabrögðum óviðbúinn. Hann gekk í gildru Svíanna áður en hann áttaði sig á þessum ódrengskap. Þá stóð hann upp og gekk út í mótmælaskyni. Myndbandi frá viðtalinu var dreift um heimsbyggðina okkar manni til háðungar. Forsætisráðherra kom síðan fram í viðtölum og sagði þessa óheiðarlegu Svía hafa komið til landsins einungis til að ofsækja sig. Eftir viðtöl sín við fjölmiðla var forsætisráðherra óumdeilt fórnarlamb mánaðarins og skákaði öllum öðrum sem röktu raunir sínar í blöðunum. Nú verðum við að svara fyrir okkur að sjómannasið. Rjúfum stjórnmálasamband við Svía og lokum Ikea-versluninni í Garðabæ. Segjum upp Lars Lagerbäck sem landsliðsþjálfara enda er liðið farið að tapa undir hans stjórn. Hættum umsvifalaust sýningum á ABBA-lofgjörðinni Mamma mia! í Borgarleikhúsinu. Endurtökum sjónvarpsviðtalið með vinveittum íslenskum blaðamönnum og dreifum því um heimsbyggðina. Segjum öllum að fyrra viðtalið hafi verið sænsk fölsun sem ekki sé mark á takandi. Nú verðum við að fara að standa í lappirnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Óttar Guðmundsson Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun