Þúsundir Breta vilja evrópsk vegabréf Sæunn Gísladóttir skrifar 19. júlí 2016 07:00
Þúsundir Breta flykkjast nú að evróskum sendiráðum til að kanna möguleikann á að fá evrópskt vegabréf í kjölfar þess að Bretar kusu að yfirgefa Evrópusambandið. CNN Money greinir frá því að sendiráð og sendiskrifstofur Þýskalands, Ítalíu, Svíþjóðar, Póllands og Ungverjalands hafi fundið fyrir auknum áhuga Breta á að ná sér í vegabréf hjá þeim. Um tvö hundruð símtöl og tölvubréf bárust á dag til þýska sendiráðsins í London í kjölfar Brexit-kosninganna, sem er tífalt meira en venjulega, að sögn talsmanns sendiráðsins. Fyrirspurnir hafa dregist saman síðan þá, en nema nú um hundrað á dag. Ítalska sendiráðið í Bretlandi fékk um fimm hundruð símtöl á dag eftir kosningarnar, frá Bretum sem voru að skoða möguleikann á að sækja um ítalskan ríkisborgararétt. „Við fáum venjulega um tíu fyrirspurnir um ríkisborgararétt á ári,“ segir talsmaður í samtali við CNN Money. Sexfalt fleiri hafa sótt um sænskan ríkisborgararétt á þeim þremur vikum sem liðnar eru frá kosningunum en venjulega hjá sænskum yfirvöldum. Þau fá að jafnaði tuttugu breskar umsóknir á viku en nú eru þær um hundrað og tuttugu. Svipaða sögu er að segja hjá pólska og ungverska sendiráðinu. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 19. júlí
Brexit Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira