Stelpurnar létu ekki slæma byrjun stoppa sig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júlí 2016 14:22 Sylvía Rún Hálfdanardóttir átti flottan leik. Mynd/FIBAEurope
Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta byrjar vel í B-deild Evrópukeppninnar í Bosníu en íslensku stelpurnar unnu níu stiga sigur á Portúgal í fyrsta leik. Íslenska liðið vann leikinn 61-52 en spilað var í Borgarhöllinni í höfuðborginni Sarajevo. Ísland var fjórum stigum yfir í hálfleik, 26-22. Haukastelpan Sylvía Rún Hálfdanardóttir átti mjög góðan leik en hún var með 21 stig, 9 fráköst og 2 stolna bolta í þessum leik. Sylvía skoraði meðal annars þrjá þrista í leiknum og hitti úr öllum átta vítaskotum sínum. Elín Sóley Hrafnkelsdóttir, sem nýlega gekk til liðs við Val frá Breiðabliki, var einnig mjög öflug í leiknum með 13 stig og 12 fráköst. Keflvíkingurinn Thelma Dís Ágústsdóttir bætti síðan við 7 stigum og 10 fráköstum. Íslenska liðið byrjaði ekki vel og var 16-7 undir eftir fyrsta leikhlutann. Stelpurnar létu ekki slæma byrjun stoppa sig, unnu annan leikhltuann 19-6 og voru með því búnar að ná frumkvæðinu í leiknum. Íslensku stelpurnar voru fjórum sitgum yfir í hálfleik, 26-22, en voru síðan komnar með 8 stiga forystu, 41-33, fyrir lokaleikhlutann. Næsti leikur íslensku stelpnanna á mótinu er á móti Rúmeníu á mánudaginn en liðið er einnig með Bosníu og Finnlandi í riðli.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Kristín Birna í stað Vésteins sem verður ráðgjafi Sport Staðfestir brottför frá Liverpool Enski boltinn Allt undir í oddaleik: Sjaldan mætt liði á Íslandi með jafn mikil einstaklingsgæði Körfubolti Íslensk hjón fóru holu í höggi á sama hring Golf Freyr á toppnum: „Ég elska Bergen“ Fótbolti „Þær eru stærri en við erum drullusterkar“ Körfubolti „Gengur aldrei einn í Liverpool en kannski gerir þú það i Madrid“ Enski boltinn „Loksins fæ ég að hafa hann í mínu liði“ Körfubolti Þorleifur snýr heim í Breiðablik Íslenski boltinn Pirraður Hamilton biðst ekki afsökunar Formúla 1 Fleiri fréttir Í beinni: Stjarnan - Grindavík | Upp á líf og dauða Lögmálið: Vil fá Óskar Ófeig hérna í staðinn Allt undir í oddaleik: Sjaldan mætt liði á Íslandi með jafn mikil einstaklingsgæði „Þær eru stærri en við erum drullusterkar“ Sendu Houston enn á ný í háttinn „Loksins fæ ég að hafa hann í mínu liði“ Diamond: Þurfum að ná í stopp allan leikinn Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 72-90 | Haukar einu skrefi frá Íslandsmeistaratitlinum Styrmir gulltryggði sigur Belfius Mons og var stigahæstur á vellinum „Verið að kveðja góðan mann með mjög glæstan feril“ Sterk liðsheild Denver á meðan Clippers féll á prófinu „Þetta var minn síðasti körfuboltaleikur“ „Ég kom til Íslands með eitt markmið“ Hamar jafnaði einvígið með stórsigri Uppgjörið: Álftanes - Tindastóll 90-105 | Stólarnir komnir í úrslit „Kóngurinn á Íslandi, DeAndre Kane, bjargaði okkur“ Houston knúði fram oddaleik Segir sína menn þurfa að vera í „meistara ásigkomulagi“ „Þeir vilja náttúrulega fleiri leiki líka“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 95-92 | Rosalegasta endurkoma síðari ára „Ég hef hluti að gera hér“ Brynjar Karl svarar fyrir sig: „Ég má ekki verja mig opinberlega“ Goðsögnin Popovich hættur í þjálfun Þurfti bara eitt orð um mestu áskorunina við að mæta Njarðvík Birti myndir af fólki, kalli það illum nöfnum og saki um einelti á meðan Faðir Haliburton fær ekki að mæta á leiki hjá Pacers Brunson sendi Pistons í sumarfrí en Clippers tryggði sér oddaleik Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 86-79 | Haukar taka forystu í úrslitaeinvíginu LeBron um framtíðina: „Hef ekki svar“ Úlfarnir sendu Luka, LeBron og félaga í sumarfrí Sjá meira