Obama segir ummæli Trump hættuleg Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 21. október 2016 07:49 Barack Obama hefur lýst yfir stuðningi við Hillary Clinton. vísir/epa
Barack Obama Bandaríkjaforseti segir það hættulegt af Donald Trump forsetaframbjóðanda að neita að gefa það út fyrirfram að hann muni una niðurstöðum forsetakosninganna í nóvember. Trump hefur ítrekað haldið því fram að úrslitunum verði hagrætt, ef Hillary Clinton mótframbjóðandi hans, vinnur kosningarnar. Trump sagði í kappræðum við Clinton að hann muni ekki sætta sig við niðurstöðurnar ef hún sigrar í kosningunum, en gaf það svo síðar meir út að hann muni sætta sig við þær ef hann sjálfur sigrar. Obama segir að með því að sá efasemdarfræjum í huga kjósenda um lögmæti kosninganna sé Trump að leika hættulegan leik sem henti óvinum ríkisins vel. Forsetinn segir það lífsnauðsynlegt fyrir lýðræðið að fólk trúi því að hvert atkvæði skipti máli. Trump hefur verið harðlega gagnrýndur á meðal flokksmanna sinna innan Repúblikanaflokksins vegna ummæla sinna um að ætla ekki að sætta sig við niðurstöðurnar. Stuðningur við Trump innan flokksins hefur minnkað mikið og hafa fjölmargir frammámenn farið fram á að Trump dragi sig úr baráttunni. Ástæðan er meðal annars myndskeið sem birtist af Trump tala með niðrandi hætti um konur sem og ásakanir um kynferðisbrot frá hópi kvenna. Innan við þrjár vikur eru í forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, en þær fara fram 8. nóvember næstkomandi.
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira