Mesta snjóveður í Stokkhólmi frá upphafi mælinga Atli Ísleifsson skrifar 10. nóvember 2016 09:59 Íbúar hafa margir gagnrýnt yfirvöld þar sem snjóruðningur hefur gengið hægt. Vísir/AFP
Mikið hefur snjóað í Stokkhólmi síðustu daga en ekki hefur snjóað jafn mikið í sænsku höfuðborginni frá upphafi mælinga sænsku veðurstofunnar árið 1905. Snjórinn hefur skiljanlega haft mikil áhrif á samgöngur í borginni þar sem strætisvagnaferðum á höfuðborgarsvæðinu öllu var aflýst í gær. Þá hafði snjórinn einnig mikil áhrif á flugumferð til og frá Arlanda-flugvelli. Búist er við frekari töfum á almenningssamgöngum í dag. Formlegar mælingar Veðurstofunnar eru framkvæmdar klukkan sjö á morgnana og mældist snjódýptin 21 sentimetri í gærmorgun en óformleg mæling síðar um daginn sýndi um 30 sentimetra. Í morgun mældist dýptin svo 39 sentimetrar. Þar er vísað í þá snjódýpt sem hefur mælst í Stokkhólmi í nóvembermánuði en fyrra metið var 29 sentimetrar árið 1985 og aftur 2004. Spáð er frosti næstu daga svo snjórinn mun ekki hverfa á næstunni. Spáð er mildara veðri í næstu viku. Íbúar hafa margir gagnrýnt yfirvöld þar sem snjóruðningur hefur gengið hægt. Þá hafa margir skilið bíla sína eftir á götum eftir að hafa fests, sem skapað hefur mikla hættu og vandræði í umferðinni.Að neðan má sjá myndband frá aðstæðum í Stokkhólmi í gær.
Veður Mest lesið Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Páll skipstjóri stígur fram og boðar áfrýjun Innlent Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Lögreglumenn „búnir að fá sig fullsadda“ af nagladekkjum Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Hnífjafnt til hægri og vinstri Innlent Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Innlent Golfklúbbarnir í óðaönn við að útbúa sérstaka félagsaðild Innlent „Því hraðar, því betra fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæðinu“ Innlent Fleiri fréttir Stefnir í enn ein réttarhöldin gegn Weinstein Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Trump um Xi og Taívan: „Hann vill ekki sjá baráttu um sjálfstæði“ Engir flökkudrónar fundist í Finnlandi Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Segir fimm milljóna punda gjöf „verðlaun“ fyrir Brexit Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Streeting segir af sér úr ríkisstjórn Starmer Varaði Trump við átökum vegna Taívan Sakfellingu Murdaughs snúið við og stefnir í ný réttarhöld Úkraínskir drónaflugmenn „rústuðu“ Svíum Hafa lofað Pútín að ná Donbas í sumar Streeting sagður munu skora Starmer á hólm í vikunni Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Skaut á bíla af handahófi með riffli PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Skuggaskip sem sökk bar mögulega kjarnakljúfa handa Kim Hafa gert leynilegar árásir í Íran Allir farþegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands Barnaníðingur frá Ungverjalandi handtekinn á Tenerife Enn eykst þrýstingur á Starmer Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum Sjá meira