Möguleiki á fullkomnu landsliðsári í Höllinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. nóvember 2016 06:00 grafík/fréttablaðið
Stelpurnar í körfuboltalandsliðinu eiga ekki aðeins möguleika á því að tryggja sér þriðja sætið í riðli sínum í undankeppni EM 2017 með sigri á Portúgal í kvöld heldur eiga þær einnig möguleika á því að tryggja hundrað prósent árangur landsliðanna í Laugardalshöllinni á þessu ári. Körfuboltalandslið karla vann alla þrjá heimaleiki sína í undankeppni EM í haust og karlahandboltalandsliðið vann sína tvo á árinu, þann fyrri í umspili á móti Portúgal í júní og þann seinni fyrr í þessum mánuði sem var fyrsti heimaleikur íslenska liðsins í undankeppni EM 2017. Körfuboltastelpurnar eiga góðar minningar úr Laugardalshöllinni því þær unnu eftirminnilegan sigur á Ungverjum þar í febrúar. Sigurinn kom mikið á óvart enda mætti Ungverjaland til leiks sem taplaust topplið riðilsins. „Sá leikur var geðveikur og allt liðið spilaði ótrúlega vel saman. Vonandi tekst þeim að fara í svoleiðis gír á morgun,“ segir Helena Sverrisdóttir sem átti stórkostlegan leik á móti Ungverjum. Helena verður þó fjarri góðu gamni í kvöld því að hún er ófrísk og getur ekki verið með. „Ég held að stelpurnar séu tilbúnar að spila aftur eftir úrslitin úr síðasta leik. Ég man lítið eftir Portúgalsleiknum úti nema að við vorum hundfúlar með hvað við vorum lélegar í þeim leik. Núna er tækifæri til að laga það,“ segir Helena. Íslenska liðið þarf annan stórleik í kvöld til að tryggja fullkomið landsliðsár í Höllinni
EM 2017 í Finnlandi HM 2017 í Frakklandi Körfubolti Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Mál Alberts truflar landsliðið ekki Fótbolti Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti Foden í stuði gegn Dortmund Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Davíð Smári tekur við Njarðvík Íslenski boltinn „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Valskonur niðurlægðu Íslandsmeistarana Tryggvi með flest fráköst í Evrópusigri Sjaldgæf 30-20-10 þrenna í Síkinu í gær Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Kristófer Acox kallar sig glæpamann Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum Sjá meira