Iheanacho ætlar að sjá um markaskorun fyrir City á meðan Agüero er í banni 7. desember 2016 16:45
Kelechi Iheanacho, framherji Manchester City, treystir sér til að sjá um markaskorun fyrir enska liðið á næstunni á meðan Argentínumaðurinn Sergio Agüero tekur út fjögurra leikja bann. Agüero verður frá langt fram í desember eftir að fá rautt spjald gegn Chelsea um síðustu helgi en þessi magnaði framherji er búinn að skora 16 mörk á tímabilinu. Iheanacho hefur fengið fá tækifæri undir stjórn Pep Guardiola en hann þakkaði traustið í gærkvöldi þegar hann skoraði jöfnunarmark City gegn Celtic í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í gærkvöldi. Manuel Pellegrini henti Nígeríumanninum unga í liðið á síðustu leiktíð en þá skoraði hann fjórtán mörk. Nú hefur hann aðeins byrjað sex leiki það sem af er vetri. „Þetta er stórt tækifæri fyrir mig núna,“ sagði Iheanacho við fréttamenn eftir leikinn í gær. City er komið áfram í 16 liða úrslitin en það hafnaði í öðru sæti síns riðils. „Sergio verður ekki með á næstunni þannig ábyrgðin er mín og ég tek henni og reyni að fylla í hans skarð. Ég þarf að leggja mikið á mig til að sýna hvað ég get og sanna mig fyrir liðinu. Við þurfum á stigum að halda í úrvalsdeildinni,“ sagði Kelechi Iheanacho.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM Fótbolti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Fótbolti HM-dómarinn sem var rekinn heim fékk hetjumóttökur Sport Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti Fleiri fréttir McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Sjá meira