Jólaandinn ræður ríkjum í Ljónagryfjunni í kvöld | Ágóði miðasölu á góðan stað Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. desember 2016 11:30 Vísir/Samsett
Það styttist í jólin og Njarðvíkingar verða í jólaskapi í kvöld þegar Njarðvík og Þór Þorlákshöfn mætast í 11. umferð Domino´s deildar karla en þetta síðasta umferðin í úrvalsdeild karla fyrir jólafrí. Stjórn Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur hefur ákveðið að allur ágóði miðasölu á leikinn í kvöld muni renna til Fjölskylduhjálpar Íslands og Neyðarsöfnunar Unicef fyrir börn í Sýrlandi. „Við hvetjum alla til þess að leggja leið sína í Ljónagryfjuna í kvöld og styðja vel við bakið á Njarðvík í baráttunni um tvö dýrmæt stig og um leið styrkja góð og þörf málefni en ágóði miðasölunnar mun renna að hálfu til Fjölskylduhjálpar Íslands og að hálfu til Neyðarsöfnunar Unicef,“ segir í frétt á heimasíðu Njarðvíkur. Þetta er frábært framtak hjá Njarðvíkingum og vonandi fá þeir góðar viðtökur og fulla Ljónagryfju í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19.15. Njarðvíkurliðið þarf líka á stuðningi að halda því liðið situr eins og er í fallsæti í deildinni og hefur tapað tveimur síðustu leikjum á móti liðum sem voru neðar en Njarðvík í stigatöflunni. Njarðvík þarf sigur ef liðið ætlar ekki að vera í fallsætinu yfir jólin. Þeir eru eins og Þórsarar enn að bíða eftir fyrsta deildarsigrinum eftir að liðið vann Íslandsmeistara KR á dögunum.
Dominos-deild karla Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Handbolti „Eitt ótrúlegasta augnablik sem þú sérð í hvaða íþrótt sem er“ Sport Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Enski boltinn Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Fótbolti Strasbourg - Breiðablik | Tekst Blikum að tryggja sig áfram? Fótbolti Fleiri fréttir ÍR - Valur | Sjóðheitir gestir í Breiðholti Tindastóll - KR | Sá fyrsti eftir metaleikinn mikla Þór Þ. - Grindavík | Ólíkt hafast þau að Keflavík - Njarðvík | Montrétturinn í húfi fyrir jólin Liðsfélagar Guðbjargar ekki fæddir þegar hún spilaði fyrsta leikinn Þola þeir ekki gott umtal? „Helmingur minna leikmanna skilur ekki íslensku“ „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Sjá meira