Smá glerkúla dældaði pressuna Samúel Karl Ólason skrifar 7. febrúar 2017 13:00 Auk þess að kremja kúluna krömdu þau einnig ketilbjöllu úr gleri og stórt stykki úr endurunnu gleri, en það er í raun aukaatriði.
Finnsku Hydraulic Press hjónin tóku sig til og birtu í gær myndband þar sem þau nota stóra vökvapressu til að kremja litla glerkúlu. Kúlan var þó það sterk að hún gerði dæld á pressuna. Óhætt er að segja að þau hafi náð nokkuð einstökum árangri með tilraun sinni. Auk þess að kremja kúluna krömdu þau einnig ketilbjöllu úr gleri og stórt stykki úr endurunnu gleri, en það er í raun aukaatriði. Glerkúlur sem þessar ganga undir nafninu Prince Rubert‘s Drop, eða Dropi Rúberts prins, héðan í frá PRD til að einfalda hlutina. Þær eru nokkuð merkilegar fyrir þær sakir að í raun eru þær sterkari en stál, en í senn mjög viðkvæmar. Meira um það neðar.PRD er sem sagt bráðið gler sem er látið leka ofan í kalt vatn, eins og sjá mátti í upphafi mynbandsins hér að ofan. Við það verður til eins konar dropi úr gleri með langan og mjóan hala. Dropinn sjálfur er einstaklega harður, en halinn mjög viðkvæmur. Með því að brjóta halann myndast höggbylgja sem lætur PRD springa út á við á augabragði. Það er í raun nóg að koma halanum á hreyfingu til að mynda höggbylgjuna sem sprengir dropann. Erfitt er að átta sig á því sem gerist án háhraðamyndavélar. Þó er hægt að berja á dropann sjálfan með hamri og jafnvel skjóta hann með byssukúlu, án þess að hann brotni. Svokallaðir „Youtubearar“ hafa margsinnis framkvæmt hinar ýmsu tilraunir með PRD, en líklega enginn meira en Destin Sandlin hjá Smarter Every Day. Hann hefur meðal annars sýnt fram á að það er hægt að skjóta dropann án þess að hann brotni. Höggið sem kemur frá byssukúlunum veldur því þó að halinn hristist og dropinn springur. Fyrir forvitna lesendur Vísis má benda á myndbandið hér að neðan, sem ætlað er sem kennslumyndband fyrir efnafræðikennara. Þá má dropann brotinn í vökvapressu á 380 þúsund römmum á sekúndu. Hér má svo sjá hvernig hægt er að búa til PRD.
Mest lesið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Nýjasta sumartrendið í boði Travolta Tíska og hönnun Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Lífið samstarf „Þetta parísarhjól sökkar“ Menning Fleiri fréttir Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ „Ætlið þið í pottinn?“ Sjá meira