Hafsteinn Hauksson til liðs við GAMMA Hörður Ægisson skrifar 17. febrúar 2017 15:45 Hafsteinn Hauksson starfaði áður hjá Newstate Partners í London.
Hafsteinn Hauksson hefur verið ráðinn til fjármálafyrirtækisins GAMMA Capital Management og mun starfa á skrifstofu félagsins í London. Hann hefur starfað hjá ráðgjafarfyrirtækinu Newstate Partners í London frá árinu 2015, en fyrirtækið sérhæfir sig í ráðgjöf á sviði opinberra fjármála, þar á meðal stýringu og endurskipulagningu opinberra skulda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá GAMMA en Hafsteinn lauk B.Sc. námi í hagfræði frá Háskóla Íslands og er með meistaragráðu í fjármálum og hagfræði frá London School of Economics. Hann starfaði um tíma sem hagfræðingur í greiningardeild Arion banka og einnig sem fjölmiðlamaður með námi, lengst af á fréttastofu Stöðvar 2. Í tilkynningu GAMMA segir að markmið eigenda og stjórnenda fyrirtækisins sé að útvikka og styrkja grundvöll starfseminnar í London. GAMMA hóf starfsemi í London árið 2015 og í fyrra fékk félagið sjálfstætt starfsleyfi frá breska fjármálaeftirlitinu í Bretlandi. Leyfið heimilar GAMMA að veita viðskiptavinum sínum víðtæka fjármálaþjónustu, sem felur meðal annars í sér fyrirtækjaráðgjöf og fjárfestingarráðgjöf.
Ráðningar Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira