Hrafn hefur náð í þrefalt fleiri stig á móti KR en á móti Stólunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2017 15:30 Hrafn Kristjánsson. Vísir/Ernir
Tindastóll tekur á móti Stjörnunni í kvöld í lokaleik 18. umferðar Domino´s deildar karla í körfubolta en leikurinn verður i beinni á Stöð 2 Sport í kvöld. Liðin eru í 2. og 3. sæti deildarinnar en með sigri þá ná Stólarnir örðu sætinu af Stjörnunni og tryggja sér jafnframt betri innbyrðisstöðu á móti Stjörnumönnum í vetur. Leikurinn hefst klukkan 19.15 en útsendingin á Stöð 2 Sport hefst klukkan 19.05. Hrafn Kristjánsson er á sínu þriðja tímabili með Stjörnuliðið og Stólarnir hafa eiginlega verið grýlan hans frá því að hann mætti í Garðabæinn. Stjarnan er aðeins búið að vinna 1 af 5 deildarleikjum sínum á móti Tindastól undir stjórn Hrafns. Sem dæmi hafa Íslandsmeistararnir og deildarmeistararnir í KR aðeins náð að fagna tvisvar sigri í fimm deildarleikjum sínum á móti lærisveinum Hrafns. Þetta er mikil breyting frá því í þjálfaratíð Teits Örlygssonar en undir hans stjórn unnu Stjörnumenn 6 af 9 deildarleikjum sínum á móti Tindastól. Israel Martin, þjálfari Tindastóls, hefur fagnað sigri í öllum þremur deildarleikjum sínum á móti Stjörnunni þar á meðal er fyrri leikur liðanna í vetur sem var fyrsti leikur Martin eftir að hann tók á nýjan leik við Stólunum.Síðustu fimm deildarleikir Tindastóls og Stjörnunnar: 18-11-2016 Tindastóll vann með 8 stigum í Ásgarði (91-83) 18-10-2015 Tindastóll vann með 11 stigum á Sauðárkróki (79-68) 15-01-2016 Stjarnan vann með 5 stigum í Ásgarði (81-76) 08-01-2015 Tindastóll vann með 9 stigum á Sauðárkróki (91-82) 09-10-2014 Tindastóll vann með 5 stigum í Ásgarði (85-80)
Dominos-deild karla Mest lesið Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið Íslenski boltinn „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Greenwood fékk annað tækifæri en ekki sonur minn“ Fótbolti „Það er æfing á morgun“ Íslenski boltinn Potter niðurlútur: „Ekki margt jákvætt“ Enski boltinn „Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Enski boltinn á sviðið Sport „Eitt mesta ofbeldi í sögu fótboltans“ Fótbolti Sló Íslandsmetið í sleggjukasti Sport Fleiri fréttir Tap í síðasta leik fyrir EM „Lukkudýrið“ í mál við félagið ÍR-ingar sækja Grikkja á Álftanesið: „Sannkallaðar gleðifréttir“ Brotnaði saman þegar hann bar liðsfélögum tíðindin Faðir Boston Celtics stjörnu handtekinn fyrir morðtilraun Yngri Agravanis-bróðirinn í Stjörnuna Beittu sér fyrir keppnisbanni Ísraela: „Ekki fengið nógu marga með okkur í lið“ Yfirlýsing KKÍ: Hætta ekki við leikinn við Ísrael Almar var kominn alla leið til Bandaríkjanna Haukur Helgi meiddur og Almar kallaður inn í hópinn Nánast allar treyjur uppseldar fyrir EM Erfitt að horfa á félagana detta út Craig Pedersen um erfitt val á EM-hóp: „Frábært vandamál að glíma við“ Forseti Íslands hvatti landsliðið til dáða Giannis loksins mættur en Grikkirnir neita að útskýra fjarveruna Svona er hópur Íslands sem fer á EM Keflavík semur við Breta: „Þekktur fyrir öfluga nærveru í teignum“ Manchester heimsækir Síkið og Tindastóll fer til fjögurra landa Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Tryggvi lét mest til sín taka í tapi gegn Portúgal Khalil Shabazz til Grindavíkur Fyrsti sigur á Svíum í 33 ár og feðgar í aðalhlutverki í báðum Eiginkonan líkir þjálfara Slóvena við Gosa Keflavík fær bandarískan framherja Misstu Martin út en sneru leiknum og unnu Svía Jaka skilinn eftir og þrettán leikmenn berjast um hin tólf sætin Með fyrsta þrjátíu tuttugu leikinn í sögu WNBA Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Sjá meira