Hrafn: Sýndum af okkur háðuglega frammistöðu sem lið Ingvi Þór Sæmundsson í Ásgarði skrifar 31. mars 2017 21:16 Hrafni var ekki skemmt í Garðabænum í gær. Vísir/Ernir
Hrafn Kristjánsson, þjálfari Stjörnunnar, var afar ósáttur með frammistöðu sinna manna í tapinu fyrir Grindavík í kvöld og dró hvergi undan eftir leik. „Ég ætla ekki að segja að ég sé sleginn en ofboðslega ósáttur við frammistöðuna og hvernig við bárum okkur í þessum leik,“ sagði Hrafn sem sagði að sínir menn hefðu einfaldlega ekki mætt til leiks, þótt þeir hafi leitt með þremur stigum, 21-18, eftir 1. leikhluta. „Við byrjuðum aldrei og vorum aldrei nokkurn tímann með í þessum leik. Við litum kannski út fyrir að stoppa þá en við gáfum þeim skotin sem þeir vildu fá. Við vorum linir og komum ekki við þá.“ Stjarnan spilaði vel í einvíginu gegn ÍR í síðustu umferð en það var allt annað uppi á teningnum í kvöld. „Við vissum að við vorum að fara að spila við betra lið. Við vissum að við þyrftum að sýna að við vildum þetta jafn mikið og taka vel á þeim. Mér fannst við ekki sýna það af okkur í dag,“ sagði Hrafn. „Mér fannst líkamstjáningin okkar ömurleg. Fljótlega eftir að það var ljóst að þeir ætluðu að gefa okkur leik fannst mér líkamstjáning nokkurra leikmanna minna gefa það til kynna að þeim fyndist þetta vera einn af þessum leikjum. Við erum staddir í undanúrslitum á móti frábæru liði og ef við getum ekki verið sárir og sýnt metnað fyrir þessu erum við ekki að fara að gera neitt.“ Hrafn segist ekki geta tekið neitt jákvætt út úr leiknum í kvöld. „Við sýndum af okkur háðuglega frammistöðu sem lið og þjálfarar. Við þurfum að vinna okkur út úr þessu sem lið og ég held að það sé ekkert unnið með því að rífa út einhverja broskalla,“ sagði Hrafn að lokum.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 78-96 | Grindvíkingar gáfu engin grið Grindavík tók forystuna í einvíginu við Stjörnuna í undanúrslitum Domino's deildar karla með 78-96 sigri í fyrsta leik liðanna í kvöld. 31. mars 2017 21:30 Mest lesið Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Körfubolti Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Körfubolti Svíinn sjóðheitur í lokin og McIlroy stimplaði sig inn Golf „Halda að við séum í einhverju stríði en hann er minn maður“ Sport Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Enski boltinn „Ég er búin að bíða eftir þessu lengi“ Golf „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ Golf Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Körfubolti FIFA stefni öryggi leikmanna í hættu á HM Fótbolti Fleiri fréttir Kallar eftir naglasnyrtingu á Króknum Grindavík - Tindastóll 89-94| Tindastóll heldur lífi í einvíginu Sýna puttann til stuðnings Kane Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Kane sektaður en ekki settur í leikbann Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Ármann yngir upp um þrjátíu ár Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 78-96 | Grindvíkingar gáfu engin grið Grindavík tók forystuna í einvíginu við Stjörnuna í undanúrslitum Domino's deildar karla með 78-96 sigri í fyrsta leik liðanna í kvöld. 31. mars 2017 21:30