Þórunn fer til starfa á sjúkrahúsi í Mósúl Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 4. apríl 2017 10:11 Þórunn Hreggviðsdóttir er skurðhjúkrunarfræðingur Mynd/Rauði krossinn
Þórunn Hreggviðsdóttir, sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi, hélt til Mósúl í Írak í dag þar sem hún mun starfa á sjúkrahúsi ásamt sameiginlegu skurðteymi Alþjóðaráðs Rauða krossins og finnska Rauða krossins. Rauði krossinn á Íslandi hefur áður sent sendifulltrúa til starfa fyrir Alþjóða Rauða krossins í Írak, bæði í og við Mósúl sem og í höfuðborginni Bagdad. „Síðan átök byrjuðu í Mósúl í október sl. hafa um 200.000 almennir borgarar þurft að flýja heimkynni sín og þúsundir hafa særst í átökunum. Alþjóða Rauði krossinn hefur stutt við sjúkrahús með mannafla í og við Mósúl síðan átök brutust út en sjúkrahúsin á svæðinu hafa ekki náð að sinna öllum þeim fjölda sem til þeirra hafa leitað eða haft yfir nægu fagfólki að ráða til að anna störfunum. Það er gott að geta sent út öfluga sendifulltrúa og veita aðstoð þar sem hennar er þörf“ segir Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi um verkefnið. Rauði krossinn í Finnlandi hefur haft yfirumsjón með skurðstofuteymum sem verða við störf á tveimur sjúkrahúsum í Mósúl. Rauði krossinn á Íslandi hefur undirbúið fleira heilbrigðisstarfsfólk úr röðum sendifulltrúa sinna til þess að fara til starfa í Mósúl þegar þörf verður á. Þórunn er skurðhjúkrunarfræðingur og starfar í hlutastarfi á Landsspítalanum, dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund sem og við háskólasjúkrahúsið í Osló. Þetta er fyrsta ferð hennar á vettvang sem sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi en hún hefur búið og starfað víða um heim, m.a. í Senegal, Jórdaníu, Bosníu, Noregi og Moskvu og hefur mikla reynslu af alþjóðlegu starfi.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira