Erlent

Um­deildur metsölu­höfundur látinn

Kjartan Kjartansson skrifar
Jeffrey Archer, breskur metsöluhöfundur og fyrrverandi stjórnmálamaður, klæddur í föt í anda Viktoríutímans í krikketleik í London árið 2013.
Jeffrey Archer, breskur metsöluhöfundur og fyrrverandi stjórnmálamaður, klæddur í föt í anda Viktoríutímans í krikketleik í London árið 2013. AP/Matt Dunham

Breski metsöluhöfundurinn og uppgjafarstjórnmálamaðurinn Jeffrey Archer er látinn, 86 ára að aldri. Hann gaf út skáldsögur sem nutu mikilla vinsælda eftir að stjórnmálaferli hans lauk með skömm.

Archer lést í gær, daginn fyrir útgáfu síðustu skáldsögu hans sem ber titilinn „Adam og Eva“.

Bókmenntaferill Archer hófst á áttunda áratugnum. Útgefandi hans segir að hann hafi selt um þrjú hundruð milljón bækur á heimsvísu. Bækur hans voru í rúm fjórtán ár á metsölulista í Bretlandi og rúm fimm ár í Bandaríkjunum.

Archer reis til metorða innan Íhaldsflokksins í tíð Margaretar Thatcher, þáverandi leiðtoga og forsætisráðherra. John Major, eftirmaður Thatchet, skipaði Archer í lávarðadeild breska þingsins árið 1992.

Þegar Archer var í framboði til borgarstjóra í London árið 1999 komu fram ásakanir um að hann hefði logið fyrir dómi í meiðyrðamáli um áratug fyrr. Málið höfðaði hann gegn bresku slúðurblaði sem sagði hann hafa greitt vændiskonu. Archer vann dómsmálið.

Árið 2001 var Archer dæmdur sekur um meinsæri í meiðyrðamálinu og hlaut fangelsisdóm. Honum var þá sparkað úr Íhaldsflokknum. Hann afplánaði um tvö ár af fjögurra ára fangelsisdómi og tók þá aftur sæti í lávarðadeildinni en utan flokka. Árið 2024 sagði hann af sér þingmennsku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×