Varaði Rússa við afskiptum af kosningum Samúel Karl Ólason skrifar 23. maí 2017 14:55 John Brennan, fyrrverandi yfirmaður Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA).
John Brennan, fyrrverandi yfirmaður Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA), varaði yfirmann Leyniþjónustu Rússlands (FSB) við því að hafa afskipti af forsetakosningum í fyrra. Hann sagði það vera ljóst síðasta sumar að Rússar væru að skipta sér af og hringdi hann því i Alexander Bortnikov. „Það ætti að vera öllum ljóst að Rússland hafði, með ósvífnum hætti, afskipti af forsetakosningunum 2016 og þeir fóru í þessar aðgerðir gegn mótmælum okkar og viðvörunum,“ sagði Brennan. Hann er nú að bera vitni fyrir nefnd fulltrúadeilda Bandaríkjaþings um njósnamál. Brennan mun hafa verið fyrsti bandaríski embættismaðurinn sem hringdi til Rússlands og varaði við afskiptum. Hann sagði Bortnikov að ef þeir hættu ekki myndi það hafa skaðleg áhrif á samband ríkjanna. Brennan segir að Bortnikov hafi neitað því að Rússar væru að skipta sér af, en sagði að hann myndi ræða þetta við Vladimir Putin, forseta Rússlands. Þá sagði Brennan að Rússar hefðu ráðið bandaríska ríkisborgara til að hjálpa við afskiptin og að þeir hafi beitt fjölmiðlum sínum eins og RT. Hægt er að horfa á nefndarfundinn hér að neðan, en þegar þetta er skrifað er fundurinn enn yfirstandandi.
Donald Trump Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Erlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps Erlent Fleiri fréttir Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Fúlsaði við þriggja forseta fundi Sjá meira