Ekki gefa fuglunum við Tjörnina brauð Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 22. maí 2017 11:03 Það er líflegt við Tjörnina þessa dagana. Vísir/GVA
Varptíminn við Tjörnina er nú í hámarki og fyrstu ungarnir koma óvenju snemma úr eggjum. Því er mikilvægt að hætta brauðgjöfum því brauðið laðar að máfa sem eiga það til að éta litla unga.Þetta kemur fram í frétt á vef Reykjvíkurborgar þar sem brýnt er fyrir borgarbúum, sem og gestum borgarinnar, að hætta brauðgjöfum við tjörnina. Mörg andapör dvelja við Tjörnina, þá einkum stokkendur og skúfendur og má því búast við dágóðum fjölda unga í sumar, gangi varpið vel. Á vef Reykjavíkurborar segir að afkoma andarunga við Tjörnina ráðist helst af því hversu gott fæðuframboðið er og einnig hvort afrán sílamáfa sé mikið eða ekki. Sílamáfarnir sækja í Tjörnina til þess að baða sig, hvíla sig og éta brauð en sumir þeirra sérhæfa sig í að éta litla unga.„Leiða má líkur að því að ef brauðgjöf er hætt fækki máfunum. Þess vegna er mælt með því að yfir varptímann sé brauðgjöf hætt við Tjörnina.“ Reykjavíkurborg mælir með því að allri brauðgjöf sé hætt frá miðjum maí og vel fram á haustið. Næg fæða er fyrir endur og aðra fugla yfir sumartímann og fram á haust. Þegar fer að kólna er gott að byrja að gefa öndunum aftur en einnig þá ætti að forðast brauð og velja frekar annað fóður, korn, fræ, hafra, afgangs salatblöð og elduð hrísgrjón sem er hollara fyrir endurnar og vistkerfið.
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Fleiri fréttir Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Sjá meira