Innlent

Katla skelfur

Agnar Már Másson skrifar
Jarðskjálftavirkni hefur mælst í Mýrdalsjökli í kvöld.
Jarðskjálftavirkni hefur mælst í Mýrdalsjökli í kvöld. Vísir/RAX

Nokkrir skjálftar hafa mælst í Mýrdalsjökli í kvöld, þá aðallega í Kötluöskju.

Bjarki Kaldalóns Friis náttúruvársérfræðingur segir í samtali við Vísi að nokkrir skjálftar hafi mælst í kringum klukkan 21.30 í kvöld.

Enn eigi eftir að yfirfara skjálftana en fyrstu tölur bendi til þess að sá stærsti hafi mælst um þrír að stærð. Þá hafi nokkrir minni fylgt í kjölfarið.

Hann segir að virknin virðist vera með öllu eðlileg enda sé um virka eldstöð að ræða. Þó kunni að vera að nýlegir jarðhitalekar í Múlakvísl tengist skjálftunum. Síðast gaus í Kötlu árið 1918




Fleiri fréttir

Sjá meira


×