Háskerpugæðin eru hvatning til að fara oftar í bíó Smárabíó kynnir 14. júní 2017 12:15 Mark Leahy (t.h.), frá Barco, afhendir Jóni Diðriki Jónssyni, eiganda Senu, viðurkenningu fyrir Smárabíó, fyrsta bíóhús landsins sem býður upp á Laser í alla sali. MYND/MUMMI LÚ
S-MAX salur Smárabíós, sem býður upp á Flagship Laser 4K og Dolby Atmos, hefur slegið í gegn, en sýningar hófust þar um helgina eftir gagngerar endurbætur. Með breytingunum er Smárabíó orðið eitt af bestu bíóum í heimi og það eina sinnar tegundar á landinu. S-MAX, sem stendur í raun fyrir það besta sem er í boði, býður kvikmyndahúsagestum nú upp á veislu fyrir augu og eyru með þessari nýjustu tækni sem völ er á í heiminum. Auk þess verður sýningarbúnaður í hinum sölunum uppfærður í Laser. Smárabíó verður þannig útbúið nýjustu, fullkomnustu og bestu tækni sem í boði er í heiminum og eina kvikmyndahúsið hérlendis sem notar Laser í öllum sölum en aðeins sárafá kvikmyndahús í heiminum bjóða upp á slíkt. Frumsýningarmynd Smárabíós í S-MAX var stórmyndin The Mummy með Tom Cruise í aðalhlutverki og leyndu viðbrögð áhorfenda sér ekki yfir þeirri nýju tækni sem kynnt var. Samkvæmt könnun sem gerð var um helgina sögðu 92% bíógesta í Smárabíó að myndgæðin hefðu verið mjög góð eða framúrskarandi og 79% að háskerpugæði Flagship Laser 4K væri hvatning til að fara oftar í bíó. „Viðbrögð gesta þessa frumsýningarhelgi voru frábær og ljóst að Laser 4K og Dolby Atmos slógu í gegn. Þetta er einfaldlega fullkomnasti bíósalur landsins en auk þess að þetta sé veisla fyrir augu og eyru, þá höfum við búið til miklu betra sætispláss svo enn betur fari um gesti,“ segir Lilja Ósk Diðriksdóttir, markaðsstjóri Smárabíós. „Við erum himinlifandi að Smárabíó hafi fært kvikmyndahúsaupplifun á Íslandi á næsta stig. Bíógestir í S-MAX salnum munu njóta enn meiri gæða sem skilar fullkomnari sjónrænni reynslu, þökk sé Flagship Laser tækninni frá Barco,“ segir Stijn Henderickx, aðstoðarforstjóri Barco. Hér fyrir neðan má sjá myndband frá smíði salarins.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Geoff og Ásta Margrét nýtt par Lífið Drengurinn sem dó Lífið Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Nakinn á kóræfingu Lífið Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri Menning „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira