Iða Brá framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 28. júní 2017 10:40 Iða Brá Benediktsdóttir hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999.
Iða Brá Benediktsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka og tekur við starfinu þann 1. júlí. Hún hefur setið í framkvæmdastjórn bankans frá því í febrúar 2016 þegar hún tók við starfi framkvæmdastjóra fjárfestingasviðs bankans. Iða Brá tekur við starfi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs af Helga Bjarnasyni sem nýverið hætti störfum hjá bankanum. Að því er fram kemur í tilkynningu mun Freyr Þórðarson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka, jafnframt sinna starfi framkvæmdastjóra fjárfestingarbankasviðs, fyrst um sinn. „Iða Brá er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er með MSc í fjármálum frá Erasmus Graduate School of Business í Hollandi og með próf í verðbréfaviðskiptum. Iða Brá hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999 þegar hún hóf störf í greiningardeild bankans. Frá þeim tíma hefur hún gegnt ýmsum störfum innan bankans, m.a. verið forstöðumaður samskiptasviðs, einkabankaþjónustu og í fjárstýringu bankans. Iða hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja; Sparisjóðs Ólafsfjarðar, AFL sparisjóðs, fasteignafélagsins Landfesta og HB Granda hf.,“ segir í tilkynningu Arion banka.Um viðskiptabankasvið Arion bankaViðskiptabankasvið Arion banka veitir einstaklingum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum vandaða fjármálaþjónustu. Á vegum viðskiptabankasviðs eru starfrækt 24 útibú og þjónustuver auk þess sem mikil áhersla er lögð á stafræna þjónustu sem meðal annars er veitt í netbanka Arion banka og Arion appinu. Alls eru um 350 stöðugildi á sviðinu.
Ráðningar Mest lesið Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Viðskipti innlent Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Viðskipti innlent Gengi Alvotech hrynur Viðskipti innlent „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ Viðskipti innlent „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Viðskipti innlent 25 sagt upp í fiskvinnslu Viðskipti innlent Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Viðskipti innlent „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Gengi Alvotech aldrei lægra 25 sagt upp í fiskvinnslu „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Gengi Alvotech hrynur „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Alvotech fær ekki leyfi fyrir hliðstæðu Simponi að svo stöddu „Ástand sem við getum ekki búið við til lengdar“ Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Tiltölulega lítil áhrif af breytingum Seðlabankans Telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið Tango Travel hættir vegna gjaldþrots Play Of snemmt að segja hvort vaxtadómurinn geri lán dýrari eða ódýrari Töldu hættu stafa af einkaþotufyrirtækinu sem var svipt starfsleyfi Gervigreindarknúið snjallsiglingarkerfi hlaut Nýsköpunarverðlaunin Högnuðust um tæpa sjö milljarða Tilkynna breytingar á lánaframboði Sverrir Einar söðlar um og selur Þrastalund Leigjendum muni fjölga um fimm þúsund fram til 2030 Bein útsending: Nýsköpunarþing 2025 - Ísland í stóru myndinni Bjarni Geir Alfreðsson matreiðslumaður látinn Færir sig í Borgartúnið eftir stutta dvöl hjá ÍSÍ Verðbólguþróunin áhyggjuefni Greiðir sér út allt að fimmtíu milljónir Verðbólga ekki meiri síðan í janúar Sjá meira