Úkraína vill inn í NATO Samúel Karl Ólason skrifar 10. júlí 2017 14:38 Jens Stoltenberg og Petro Poroshenko. Vísir/AFP
Ríkisstjórn Úkraínu tilkynnti í dag að viðræður við Atlantshafsbandalagið munu hefjast á næstunni. Til standi að Úkraína muni sækja um inngöngu í NATO og vinna að endurbótum innanlands til þess að ná þeim skilyrðum sem til þarf fyrir árið 2020. Sérfræðingar telja mörg ár í að Úkraína geti sótt formlega um aðild. Petro Poroshenko, forseti Úkraínu, hitti Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra NATO í dag, og ræddu þeir mögulega inngöngu landsins í varnarbandalagið. Stoltenberg notaði tækifærið einnig til þess að kalla eftir því að yfirvöld í Rússlandi kölluðu hermenn sína í austurhluta Úkraínu heim aftur. „Í dag sögðumst við vilja byrja viðræður um aðildaráætlun og uppástungur okkar varðandi þær viðræður voru samþykktar,“ sagði Poroshenko samkvæmt frétt Reuters. Úkraína stendur í átökum við aðskilnaðarsinna í austurhluta landsins sem studdir eru af Rússlandi. Rússar innlimuðu einnig Krímskaga frá Úkraínu árið 2014. Rússar hafa lengi verið reiðir yfir því að ríki nærri landamærum sínum hafi sótt um og fengið aðild að NATO. Dmitry Peskov, talsmaður Vladimir Putin, forseta Rússlands, sagði í dag að aðild Úkraínu að NATO myndi ekki auka stöðugleika og öryggi í Evrópu. Samkvæmt könnun sem framkvæmd var í júní vilja um 69 prósent Úkraínumanna ganga til liðs við NATO.
Úkraína Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira